Ramos er nýr stjóri Tottenham

0
663

Juande Ramos hefur verið ráðinn stjóri í stað MArtin Jol sem rekinn var á fimmtudag. Ramos kemur frá Sevilla þar sem hann hefur náð mjög góðum árangri. Hann mun taka við liðinu á mánudag og því verður fyrsti leikur hans með liðið leikurinn gegn Blackpool í deildarbikarnum.

Með honum frá Sevilla kemur þrekþjálfari hans Marcos Alvarez. Þá hefur Tottenham óskað eftir að fá að tala við Gus Puyet, en hann er núna á mála hjá Leeds.
Meðal afreka Ramos eru tveir UEFA tittlar á jafnmörgum árum hjá Sevilla og á síðustu leiktíð munaði hársbreitt að hann gerði Sevilla að meisturum á Spáni.
Við bjóðum nýjan stjóra og aðstoðarmenn hans velkomna til Tottenham.