Það var sannkölluð markaveisla á White Hart Lane þegar nágrannarnir í West Ham heimsóttu Tottenham. Tottenham sigraði með fjórum mörkum gegn engu marki West Ham manna og það voru þeir Berbatov (2), Gilberto og Bent sem skoruðu mörkin.
Ramos mætti með nánast sitt sterkasta lið þrátt fyrir að stutt sé í mikilvægan leik gegn PSV. Einstaka leikmenn voru þó fjarverandi vegna meiðsla, þ.á.m. Ledley King en hnéð hans virðist hindra hann í að spila of ört. Liðið var þannig skipað að Robinson var í marki og vörnin var skipuð þeim Hutton, Dawson, Woodgate og Chimbonda. Á miðjunni spiluðu þeir Lennon, Huddlestone, Zokora og Malbranque og frammi voru þeir Berbatov og Keane. Á bekknum sátu Cerny, Tainio, Bent, Gilberto og Boateng.
Það leið ekki á löngu þar til liðin fóru að skapa sér færi og fyrsta hættulega færið kom frá West Ham mönnum. Ljungberg skaut að marki en Robinson náði að verja skotið en hélt þó ekki boltanum. Boltinn barst á ný til leikmanns West Ham en Robinson náð enn og aftur að koma í veg fyrir skotið en hélt ekki boltanum. Því var sóknin ekki búin því það sama gerðist enn á ný og ekki náði Robinson að halda boltanum heldur í þetta skiptið og nú barst boltinn til Zamora sem þrumaði boltanum í átt að marki en hitti beint í samherja og boltinn fór yfir markið. Leikmenn Tottenham voru því heppnir að vera ekki marki undir. Þremur mínútum síðar fékk Tottenham svo aukaspyrnu nokkrum metrum hægra megin fyrir utan teiginn. Huddlestone tók spyrnuna og gaf háan bolta inn í teiginn sem hitti beint á hausinn á Berbatov og hann átti ekki í vandræðum með að skalla boltann framhjá Green í markinu. Tíu mínútum síðar var nánast um algjöra endurtekningu að ræða. Tottenham fékk aukaspyrnu fyrir utan teiginn en í þetta skiptið vinstra meginn. Huddlestone gaf boltann inn í teiginn þar sem Berbatov tók á sprettinn og skallaði boltann á ný framhjá Green. Leikmenn Tottenham náðu svo algjörum yfirburðum eftir þessi tvö mörk en náðu þó ekki að bæta við öðru marki. Tveimur mínútum fyrir hálfleikshlé varð West Ham fyrir áfalli þegar Boa Morte var rekinn af velli eftir að hafa fengið tvö gul spjöld. Þetta kom fáum á óvart enda búinn að brjóta oft á leikmönnum Tottenham en lengi vel sloppið við seinna gula spjaldið. Í þetta skiptið átti dómarinn engra kosta völ en að senda hann af velli eftir glórulaust brot á Aaron Lennon. Leikmenn West Ham þurftu því að spila 10 það sem eftir lifði leiks en mörkin urðu þó ekki fleiri í fyrri hálfleiknum og staðan því 2-0 fyrir heimamenn.
Það var ansi mikill hiti í mönnum og mættu allir sem einn ákveðnir til leiks í seinni hálfleik. Huddlestone átti þrumuskot að marki West Ham en boltinn fór rétt yfir þverslánna. Ekki var þó mikið um dauðafæri fyrri hlutann af seinni hálfleiknum en á 57.mínútu gerði Ramos sína fyrstu skiptingu. Malbranque fór af velli og inná kom Gilberto sem átti slæman dag í evrópuleiknum gegn PSV. Tólf mínútum síðar fór Keane svo af velli og inná í hans stað kom Darren Bent. Og á 76. mínútu var komið að þriðju skiptingunni en þá kom Tainio inná fyrir Woodgate og Zokora færði sig þá aftur í hjarta varnarinnar. Leikmenn West Ham gerðu allt sem þeir gátu til að minnka muninn en vörn Tottenham stóð fyrir sínu og varð það svo að Tottenham bætti bara við forustuna. Chimbonda gaf boltann á Gilberto inni í vítateignum sem sneri sér vel og skaut framhjá Green og beint í markið. Fyrsta mark hans fyrir félagið en þetta var einungis annar leikur hans fyrir félagið eftir að hafa verið keyptur frá Herthu Berlín í janúar. Vel gert og eflaust hefur þetta eitthvað bætt sjálfstraustið hjá honum eftir leikinn í vikunni. Berbatov komst nálægt þrennunni eftir gott samspil frá Hutton og Lennon en boltinn small í hliðarnetinu. En sigurinn var fullkomnaður í uppbótartíma þegar Hutton gaf góða fyrirgjöf fyrir markið á Bent sem skallaði boltann beint í netið og lauk leiknum því með stórsigri Tottenham 4-0 og var þetta þriðji 4-0 tapleikur West Ham í röð á 9 dögum.
Lið Spurs: Robinson, Hutton, Dawson, Woodgate(Tainio), Chimbonda, Lennon, Zokora, Huddlestone, Malbranque(Gilberto), Keane(Bent), Berbatov. Ónotaðir varamenn: Cerny, Boateng.






