Tap í Manchesterborg

0
586

Tottenham tapað fyrir Manchester City þegar liðið heimsótti þá á City of Manchester Stadium. Leiknum lauk með 2-1 sigri City manna en mark Tottenham skoraði Robbie Keane.

Ramos gerði ekki miklar breytingar og mætti með sterkt lið til leiks. Í marki var sem fyrr Paul Robinson og í vörninni spiluðu þeir Hutton, Dawson, Woodgate og Chimbonda. Miðjan var skipuð þeim Lennon, Jenas, Zokora og Malbranque og frammi voru þeir Berbatov og Keane. Á bekknum sátu Cerny, Tainio, O´Hara, Bent og Huddlestone.

     Leikmenn Tottenham mættu ákveðnir til leiks og eftir nokkrar mínútur áttu Keane og Hutton gott samspil sem skapaði hættulegt færi. Keane gaf á Hutton á kantinum sem gaf boltann til baka á Keane hægra megin í vítateignum. Keane náði að koma boltanum fyrir markið þar sem Lennon kom aðsvífandi en hann var þó aðeins of seinn í boltann. Keane fékk svo gott færi sjálfur á 15.mínútu þegar Dawson sendi háan bolta fram en Hart, markvörður City, var örfáum sekúndubrotum á undan í boltann. Dawson kom svo aftur við sögu stuttu síðar en þá við sitt eigið mark. Johnson átti gott skot að marki en Dawson komst í veg fyrir skotið og fór boltinn í bringu Dawson en svo virtist sem hann hefði einnig lent í hönd hans en leikmenn Tottenham sluppu með skrekkinn þar sem dómarinn dæmdi ekki víti. Sóknin var þó ekki búin því Elano og Benjani náðu báðir skoti að marki en bæði Robinson og Dawson vörðust skotunum og staðan var því enn jöfn 0-0. Þegar hálftími var liðinn af leiknum kom fyrsta mark leiksins. Chimbonda tók sprett upp vinstri kantinn og gaf fyrir á Keane sem kom boltanum framhjá Hart og skoraði sitt þrettánda mark í deildinni í vetur og 21. í öllum keppnum. Johnson, Elano og Castillo áttu allir ágætis tækifæri til að jafna leikinn en tókst það ekki og Lennon fékk ágætisfæri en skaut framhjá marki City. Staðan í hálfleik var því 1-0 fyrir Tottenham.

     Ramos gerði sína fyrstu breytingu strax í hálfleik þegar Lennon fór af velli og inná í hans stað kom Huddlestone. City menn fengu þó fyrsta hættulega færi seinni hálfleiksins en Robinson sá við þeim með aðstoð varnarmanna sinna. Huddlestone átti svo skot að marki sem Hart átti ekki í vandræðum með en á 59.mínútu náðu City menn að jafna leikinn. Margir voru ekki á eitt sáttir með jöfnunarmarkið enda talsverð rangstöðulykt af því. Ireland fékk boltann beint fyrir framan markið og virtist vera ragnstæður en línuvörðurinn dæmdi ekkert og því stóð markið. Eftir þetta gerði Ramos aftur skiptingu og í þetta skiptið gerði hann tvöfalda skiptingu. Malbranque og Keane fóru af velli og Bent og O´Hara komu inná í stað þeirra. Skiptingin skilaði þó ekki réttum árangri enda virtust leikmenn Tottenham nokkuð áhugalausir. Á 71.mínútu komst svo City yfir með marki frá Onuoha eftir hornspyrnu og staðan því orðin 2-1. Lítið var um hættuleg færi eftir það en Bent kom þó boltanum yfir marklínu City manna en dómarinn dæmdi markið af sökum rangstöðu en margir telja þó að þar hafi hann haft rangt fyrir sér. Leiknum lauk svo með sigri Manchester City 2-1.

Lið Spurs: Robinson, Hutton, Dawson, Woodgate, Chimbonda, Lennon(Huddlestone), Jenas, Zokora, Malbranque(O´Hara), Keane(Bent), Berbatov. Ónotaðir varamenn:Cerny, Tainio.