King ekki meira með á tímabilinu

0
615

Félagið tilkynnti það í gær að Ledley King mun ekki spila meira með liðinu á þessu tímabili. Mun hann því hvíla sig og halda áfram endurhæfingu sinni svo að hann geti komið heill heilsu til leiks á næsta tímabili. Var sú ákvörðun tekin í ljósi þess að liðið hefur tryggt sér þátttökurétt í Evrópukeppninni á næsta tímabili og er á öruggu róli í deildinni. Í viðtali sagði King að hann að hnéð væri í ágætislagi núna og það væru ekki neinar bólgur í því. En það þyrfti að taka tillit til heildarmyndarinnar og þetta væri hentugur tími til að halda áfram að ná sem bestum bata, leita ráða hjá sérfræðingum og sjá til þess að hann kæmi tilbaka á næsta tímabili í toppformi.

Við óskum King góðs bata og vonumst til að sjá hann heilan heilsu á næstu leiktíð.