Enn eitt stigið

0
752

Tottenham og Middlesbrough skildu jöfn að stigum þegar síðarnefnda liðið kom í heimsókn á White Hart Lane. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en mark Tottenham var sjálfsmark sem Grounds skoraði. Downing jafnaði leikinn fyrir Boro en boltinn kom við höfuð Jenas á leið í netið.

Ramos hélt uppteknum hætti og stillti fram sterku liði og lítið ber á því að þeir ungu og óreyndu fái að spreyta sig. Cerny stóð á milli stanganna og fyrir framan hann í vörninni spiluðu þeir Hutton, Dawson, Woodgate og Chimbonda. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Zokora og Malbranque og frammi sem fyrr þeir Keane og Berbatov. Á bekknum sátu þeir Forecast, Gilberto, Huddlestone, Bent og Tainio.

Eftir nokkurra mínútna leik tókst Alfonso Alves að koma boltanum framhjá Cerny í markinu eftir að Cerny hafði varið skot frá Aliadiere. Gleði Boro manna entist þó ekki lengi því markið var réttilega dæmt af sökum rangstöðu. Eftir þetta tóku leikmenn Tottenham nokkra stjórn á leiknum en eins og svo oft áður vantaði að klára færin. Lennon og Keane unnu vel saman á 11.mínútu og á endanum gaf Keane sendingu fyrir markið á Berbatov en Schwarzer var vel vakandi í markinu. Átta mínútum síðar þurfti Schwarzer enn á ný að halda einbeitingu sinni þegar Jenas tók á sprett í áttina að markinu en úthlaup hans var gott og boltinn öruggur í hans höndum. En á 25.mínútu gat Schwarzer lítið gert þegar ólukkan dundi yfir Boro menn. Berbatov fékk boltann vinstra megin í teignum og gaf glæsilega sendingu fyrir markið á Lennon sem ætlaði að gefa fyrir markið á Keane. Boltinn fór þó í Jon Grounds, leikmann Boro, og í netið og Tottenham því komið yfir 1-0. Leikmenn Boro reyndu að jafna en sóknir þeirra voru máttlausar en sömu sögu var að segja um leik Tottenham manna, uppá vantaði að klára færin. Staðan var því 1-0 í hálfleik.

Leikmenn Middlesbrough mættu mun ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og eftir nokkrar mínútur áttu þeir dauðafæri. Wheater skallaði að marki eftir hornspyrnu en Lennon bjargaði á línu með skalla. Stuttu síðar átti Berbatov svo skot í stöngina og Woodgate átti skalla sem hitti ekki á rammann. Á 60.mínútu gerði Ramos sína fyrstu skiptingu, Malbranque fór af velli og Huddlestone kom inná í hans stað. Átta mínútum síðar náðu Boro menn svo að jafna leikinn. Downing skaut löngu skoti að marki en boltinn kom við hausinn á Jenas og breytti örlítið um stefnu en þó ekki nóg til  að markið teldist sjáflsmark og það því skráð á Downing. Staðan orðin jöfn 1-1 og útlitið ekki gott fyrir Tottenham enda ansi máttlausir í sóknaraðgerðum sínum. Á 70.mínútu kom Gilberto inná í stað Chimbonda og fimm mínútum síðar breytti Ramos leikkerfinu þegar hann setti Bent inná í stað Lennon. Boro menn áttu þó hættulegri færi og fékk Alves upplagt færi til að koma Boro yfir þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Hann komst einn á móti Cerny en skaut boltanum framhjá markinu. Huddlestone átti svo ágætis skot að marki úr aukaspyrnu á lokamínútunum sem fór framhjá veggnum og Schwarzer varði en missti boltann í fyrstu en náði honum að nýju. Leiknum lauk því með jafntefli 1-1 og má segja að úrslitin hafi verið sanngjörn þar sem hvort liðið átti sinn hálfleik.

Lið Tottenham: Cerny, Hutton, Dawson, Woodgate, Chimbonda(Gilberto), Lennon(Bent), Jenas, Zokora, Malbranque(Huddlestone), Keane, Berbatov. Ónotaðir varamenn:Forecast, Tainio.