Góður útisigur

0
878

Tottenham vann góðan útisigur í deildinni þegar liðið heimsótti nágrannaliðið West Ham á Upton Park. Leiknum lauk með 2-0 sigri Tottenham og voru það þeir Ledley King og Jamie O´Hara sem skoruðu mörkin. Með sigrinum komst Tottenham í 15.sæti deildarinnar upp fyrir West Ham í stigatöflunni. Liðin eru jöfn að stigum en markahlutfall Tottenham öllu betra.

Harry stillti upp sterku liði gegn sínu fyrra félagi. Gomes stóð milla stanganna og vörnin var skipuð þeim Corluka, Woodgate, King og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, Modric, Zokora og Lennon og Pavlyuchenko var því einn frammi. Á bekknum sátu þeir Cesar, Dawson, Bale, Huddlestone, O´Hara, Boateng og Bent.

 

Leikmenn Tottenham byrjuðu leikinn betur og fengu upplagt færi á fyrstu mínútum leiksins. Lennon gaf fyrirgjöf inn í teiginn og Bentley tók við boltanum, renndi honum til hliðar á Modric sem var vel staðsettur fyrir framan markið í vítateignum en skot hans var beint á Green í markinu. En þrátt fyrir góða byrjun náðu leikmenn ekki að halda því gangandi og hvorugt liðið náði að skapa sér hættuleg færi á fyrri helmingi fyrri hálfleiks. En þegar líða tók á hálfleikinn komu nokkur færi sem hefðu með smá heppni skilað marki. Bentley átti tvisvar sinnum skalla á markið og í seinna skiptinu varði Green meistaralega. Leikmenn West Ham komu boltanum í netið eftir hornspyrnu en brotið var á Jenas í teignum og aukaspyrna flautuð áður en boltinn fór í netið og markið því ekki dæmt gilt. Hættulegast færi fyrri hálfleiksins fékk svo Pavlyuchenko eftir góða fyrirgjöf frá Lennon en skot hans hafnaði í stönginni. Hvorugu liðinu tókst að skora og staðan því jöfn, 0-0, í hálfleik.

 

Á upphafsmínútum síðari hálfleiks fengu West Ham menn færi þegar Neill kom boltanum fyrir markið en Faubert náði ekki til boltans. Á hinum enda vallarins ógnaði Lennon varnarmönnum West Ham og gaf góða sendingu á Modric en Green varði skot hans vel. Stuttu síðar vildu leikmenn Tottenham fá vítaspyrnu þegar Ilunga varði boltann með höndum þegar Corluka reyndi fyrirgjöf inn í teiginn. Hvorki dómari né línuvörður virtust sjá atvikið og því var ekkert dæmt en sjónvarpsendurtekning sýndi að boltinn fór greinilega í hönd hans. Harry kaus svo að gera skiptingu, Pavlyuchenko fór af velli og inná í hans stað kom Darren Bent. Hann fékk upplagt tækifæri þegar um klukkustund var liðin af leiknum eftir gott samspil Lennon og Jenas en skot hans var misheppnað og fór framhjá markinu. Leikmenn Tottenham héldu áfram að sækja og pressuðu stíft á vörn West Ham. Bent og Zokora fengu ágæstis færi en inn fór boltinn ekki. Á 68.mínútu náðu leikmenn Tottenham svo að skora fyrsta mark leiksins og var það enginn annar en kóngurinn sjálfur, Ledley King, sem skoraði markið. Var þetta hans fyrsta mark síðan í desember 2005 og tími kominn á mark frá honum. Lennon átti góða fyrirgjöf fyrir markið þar sem King hoppaði hæstur manna og skallaði boltann framhjá Green í markinu. Staðan orðin 0-1 fyrir Spurs. Di Michele reynd skot á hinum enda vallarins en Woodgate var vel vakandi og kom í veg fyrir að úr yrði mark. Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum var Lennon nálægt því að skora en það var svo frábær markvarsla Gomes sem hélt forystu Tottenham. Neill átti skot að marki sem Gomes varði glæsilega, boltinn barst út í teiginn og á endanum til Di Michele en skot hans var beint á Gomes. Leikmenn spurs voru snöggir að koma boltanum í leik, Corluka sendi langa sendingu á O´Hara sem þrumaði boltanum í netið og staðan því orðin 0-2. Ekki voru fleiri mörk skoruð og lauk leiknum því með 2-0 sigri Tottenham.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Ekotto, Bentley (O´Hara), Jenas, Modric, Zokora, Lennon, Pavlyuchenko (Bent). Ónotaðir varamenn: Cesar, Bale, Dawson, Huddlestone og Boateng.