Emil Hallfreðsson gerði eina mark Tottenham varaliðsins í jafnteflisleik gegn Boreham Wood’s. Emil jafnaði leikinn á 54. mínútu. Hann átti líka skot að marki sem markmaðurinn varði í stöng og út og einnig tvær fyrirgjafir sem báðar skópu marktækifæri.






