Varalið Tottenham lék í dag gegn Cambridge City og vann 3-1. Emil Hallfreðsson gerði annað markið eftir að Andy Barcham (sjá mynd) hafði komið Tottenham í 1-0. Strákarnir okkar höfðu töglin og höldin í leiknum allan tímann. Cambridge náði þó að minnka muninn fyrir hlé en það var nánast eina færið þeirra í hálfleiknum. Reto Ziegler skoraði svo þriðja markið úr aukaspyrnu í síðari hálfleik.
Nýjustu fréttirnar
Hópferð Tottenhamklúbbsins – Nóvember 2026
Daginn Þá er komið að fyrstu hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi tímabilið 2026-2027Farið verður á leik Tottenham - Ipswich sem verður á Tottenham Hotspur Stadium,...







