Góð mæting á aðalfundinn

0
782

Aðalfundur Tottenhamklúbbsins var haldinn í gærkvöldi. Átján manns mættu og verður það að teljast gott í ekki stærra félagi. Formaðurinn fór yfir ársreikning klúbbsins og kom þar fram að hagnaður af starfi klúbbsins var rúm 55.000,- síðasta vetur. Í klúbbinn borguðu 181 sem er 19 færri en árið áður.

Varðandi starfið í vetur þá var haldinn árshátíð í fyrsta skipti í október og tókst hún vel. Þá hefur ný heimasíða litið dagsins ljós. Nú er verið að undirbúa ferð á leikinn við Everton 15. október. Nánar um það síðar. Einnig er í undirbúningi samstarf stuðningsklúbbanna á Íslandi. Þá kom fram hjá formanninum að viðræður standa yfir við umsjónarmenn útsendinga Enska boltans um að stuðningsklúbbarnir komi með einhverjum hætti að útsendingum Enska boltans.
Ársreikningurinn og skýrsla stjórnar var samþykkt einróma. Stjórnin var öll endurkjörin. Síðan voru almennar umræður og að þeim loknum var fundi slitið.

 

DEILA
Fyrri fréttEmil skorar aftur
Næsta fréttMeistarar friðarins