Liverpool í fyrsta leik

0
707

Leikjaplanið fyrir komandi leiktíð var gefið út í morgun en það mun þó taka einhverjum breytingum á næstu dögum þegar sjónvarpsleikir verða ákveðnir. Það eru þó helst tímasetningar sem munu breytast og leikir færðir á sunnudaga og mánudaga. Tottenham byrjar á sannkölluðum stórleik því þeir fá Liverpool í heimsókn á White Hart Lane í fyrsta leik. Ekki er hægt að segja að upphaf tímabilsins verði liðinu auðvelt því liðið mætir þremur af þessum svokölluðu topp 4 liðum í 6 fyrstu leikjunum, þeim Liverpool (heima), Manchester United (heima) og Chelsea (úti). Lok tímabilsins verður sömuleiðis ekki af auðveldara tagi því liðið mætir einnig þremur af topp 4 liðunum í fimm síðustu leikjunum, þeim Arsenal (heima), Chelsea (heima) og Manchester United (úti). Stórleikirnir við Arsenal verða dagana 31.október á Emirates og 10.apríl á White Hart Lane, en athygli skal vakin á því að dagsetningar leikja geta breyst á næstu dögum.

 

Leikjaplanið í heild sinni má sjá undir "Liðið" – "Leikir og úrslit" hér vinstra megin á síðunni.

DEILA
Fyrri fréttMark tímabilsins?
Næsta fréttZokora til Sevilla