Tottenham tilkynnti í dag að félagið hafi komist að samkomulagi við Sevilla um kaup þess síðarnefnda á Didier Zokora. Kaupverðið var þó ekki gefið upp. Zokora kom til Tottenham frá St. Etienne sumarið 2006 og spilaði alls 134 leiki fyrir félagið.
Við þökkum honum kærlega fyrir framlag hans til liðsins um leið og við óskum honum velfarnaðar í framtíðinni.






