Sigur í fyrsta leik

0
619

Leikmenn Tottenham eru mættir aftur til æfinga eftir sumarleyfi og fyrsti leikurinn á undirbúningstímabilinu gegn Exeter búinn. Leikurinn fór fram í kvöld (15.7) á ST. James‘ Park. Liðsuppstillingin gaf það til kynna að um var að ræða æfingaleik, því margir ungir óreyndir leikmenn byrjuðu leikinn. Það var svo sem aldrei spurning hvort liðið væri betra í leiknum þrátt fyrir að margir af betri leikmönnum Tottenham sætu á bekknum til að byrja með. Byrjunarliðið skipuðu þeir
Cudicini, Hutton, Chimbonda, Dervite, Corluka, Bentley, Huddlestone, O‘Hara, Rose, Defoe, Keane

 

Það vakti einnig athygli viðstaddra að Harry Redknapp var ekki við stjórnvölin en var mættur í stúkurnar í síðari hálfleik.

Liðin fóru varlega af stað og jafnræði var á með liðunum a.m.k. fyrstu 15 mínúturnar. Exeter átti fyrsta hættulega færið í leiknum á 7. mínútu þegar þeir náðu góðum skalla að marki af 11 metra færi, en boltinn fór rétt framhjá markinu. Í raun var þetta eina alvöru færi Exeter í fyrri hálfleik. Á 29. mínútu áttu leikmenn Tottenham svo sitt fyrsta dauðafæri þegar Huddlestone skaut einum af sínum þrumufleygum af 22 metra færi, en boltinn smaug yfir þverslánna. Þremur mínútum síðar opnaði svo O‘Hara markareikning Tottenham þegar hann náði frákasti eftir skot Keane og smellti boltanum í netið af 14 metra færi. Leikmenn Tottenham voru í tvígang nærri því að skora áður en fyrri hálfleikur var úti, en maður leiksins, Paul Jones í marki Exeter varði glæsilega í bæði skiptin. Staðan því 0-1 í hálfleik, Tottenham í vil.

Það steig svo gjörbreytt lið inná völlinn í síðari hálfleik þar sem gerðar voru 11 skiptingar. Liðið var þá skipað þeim: Button, Gunter, Assou-Ekotto, Livermore, Dawson;  Lennon, Palacios, Boateng, Modric; Bent og Pavlyuchenko. Það var greinilegt að liðið ætlaði að halda áfram þar sem frá var horfið. Eftir rúmlega tveggja mínútna leik átti Dawson skot með vinstri fæti í stöngina. Næstu 10 mínúturnar dundu skotin á marki Exeter en Jones í markinu stóð sem klettur milli stanganna.
Á 63. mínútu náðu Exeter menn sínu fyrsta góða skoti að marki Spurs, en boltinn fór rétt yfir. Tottenham hélt þó ennþá völdunum á vellinum. Á 69 mínútu bættu leikmenn Spurs við marki þegar Lennon skoraði af 9 metra færi. Staðan því orðin 0-2. Eftir markið áttu Tottenham nokkur skot að marki, en Jones sem fyrr varði vel. Á 81. mínútu kom svo þriðja og síðasta markið þegar Bent náði frákasti eftir að Pavlyuchenko hafði skallað að marki og Bent var réttur maður á réttum stað og skoraði. Tveim mínútum síðar hreinsuðu Exeter menn skot Palacios af línu. Besta færi Exeter manna kom svo á 94 mínútu þegar þeir áttu skalla sem smaug fram hjá stönginni.
Loka niðurstaðan því 0-3

EKG