Tottenham hóf keppni í Webley bikarnum á föstudaginn gegn liði Barcelona. Margir höfðu vonast eftir að sjá Barcelona tefla fram einhverjum af stórstjörnunum sínum í leiknum. Gardiola tefldi hinsvegar fram ungu og óreyndu liði. Það er þó ekki hægt að tala um að þetta hafi verið slakt lið, því eins og flestir vita er unglingastarf Barcelona með því besta og afkastameira sem þekkist í fótboltanum. Auk ungu strákana í liði Barca mátti sjá nokkur þekkt andlit, þar á meðal Eið Smára Guðjónsen sem byrjaði leikinn í liði Barcelona. Harry Redknapp stjóri Tottenham stillti hinsvegar upp reyndum mönnum. Það var mikið um meiðsli og því átti Harry í vandræðum með að stilla upp í vörn og sókn. Dawson, Woodgate og King voru allir fjarverandi í stöðu miðvarðar. Pavlyuchenko og Bent voru einnig fjarverandi sökum meiðsla og fyrirliðinn Keane átti einnig við smávægileg meiðsli að stríða og byrjaði leikinn á bekknum. Harry sá sér því þann kost vænstan að stilla upp í leikkerfi 4-5-1.
Leikurinn fór rólega af stað en frá fyrstu mínútu var ljóst að þetta unga lið Barcelona væri fullfært til að standa í hárinu á reynsluboltunum í Tottenham. Barcelona sótti meira og var meira með boltann í fyrri hálfleik. Bæði lið fengu nokkur hálffæri fyrstu 20 mínúturnar án þess þó að ná skoti á markið. Eftirtektaværasta færið fékk líklega Eiður Smári þegar hann reyndi bakfallsspyrnu í vítateig Tottenham, hann náði þó ekki að hitta boltann nægilega vel og því engin hætta á ferðum. Á 21 mínútu kom svo fyrsta skotið á markið í leiknum. Það var Rodgriguez sem átti gott skot að marki Tottenham sem Cudicini í markinu náði að bjarga meistaralega. Á 32. mínútu kom svo fyrsta mark leiksins. Toure tók á rás að vítateig Tottenham og færði sig fimlega frá tæklingum Palacios og svo Corluka áður en Huddlestone náði að tækla hann, en boltinn datt fyrir fætur undrabarnsins Bojan sem gerði engin mistök og lagði boltann í netið af 10 metra færi. Á 39. mínútu fór svo að draga til tíðinda við mark Barcelona. Luka Modric fékk sendingu frá Palacios og skaut að marki en boltinn fór í slánna. Boltinn barst þar til Lennon sem fann Ekotto óvaldaðan á fjærstönginni. Ekotto tók skotið viðstöðulaust á lofti. Boltinn hafnaði í jörðinni og virtist ætla að skoppa yfir markvörð Barca sem náði með fingurgómunum að blaka boltanum yfir markið. Cudicini náði svo rétt fyrir lok hálfleiks að verja gott skot frá leikmanni Barcelona. Staðan í hálfleik því verðskuldað 1-0 Katalóníumönnum í vil.
Þjálfarar liðanna beggja breyttu liðinum hressilega í hálfleik. Guardiola stjóri Barcelona gerði 11 breytingar á liðnu og sendi því gjörbreytt lið inná völlinn í síðari hálfleik. Meðal þeirra sem komu inná í lið Barca voru Seydou Keita ungstirnið sem hefur vakið heimsathygli og Jonathan dos Santos bróðir Giovani dos Santos leikmanns Tottenham. Harry gerði aðeins 4 breytingar þegar hann setti þá Gomes, Kyle Naughton, Keane og Chimbonda inná í stað Cudicini, Hutton, O‘Hara og Jenas.
Tottenham virtist ná ögn betri tökum á leiknum í síðari hálfleik án þess að skapa sér mörg færi til að byrja með. Chimbonda fékk frían skalla fyrir framan markið sem hann náði ekki að stýra að marki og Tom Huddlestone átti gott skot fyrir utan teig sem fór í varnarmann og fór rétt framhjá marki. Það færðist nokkuð líf í leikinn síðari hluta síðari hálfleiks og liðin fengu ágæt færi en jöfnunarmark Tottenham kom ekki fyrr en á 83. mínútu. Ekotto fær boltann eftir stutta hornspyrnu og sendir boltann hárnákvæmt á kollinn á Jake Livermore sem hafði komið inná stuttu áður og hann gerði engin mistök og skallar boltann í netið. Loka tölur því 1-1
Cudicini (Gomes, 45), Hutton (Kyle Naughton, 45), Corluka, Huddlestone (Bostock, 80), Ekotto (Dervite, 84), Lennon, Jenas (Chimbonda, 45), Palacios (Livermore, 80), O‘Hara (Keane, 45), Modric (Rose, 75), Defoe
EKG






