Crouch kominn „heim“

0
735

Tottenham tilkynnti í kvöld að liðið hafi komist að samkomulagi við Portsmouth um kaup á framherjanum Peter Crouch. Kaupverðið var ekki gefið upp en það er talið vera í kringum 9 milljónir punda. Segja má að Crouch sé því kominn heim aftur þar sem hann byrjaði sinn fótboltaferil hjá Tottenham, en hann skrifaði undir sinn fyrsta atvinnumannasamning hjá Tottenham 17 ára gamall. Hann náði hins vegar ekki að vinna sér inn sæti í aðalliði félagsins og var seldur til QPR tveimur árum síðar. Þessi hávaxni framherji hefur svo spilað fyrir lið eins og Aston Villa, Norwich, Southampton, Liverpool og Portsmouth en er nú kominn til Tottenham.

 

Við bjóðum Crouch velkominn til félagsins