Fyrsta tap tímabilsins

0
772

Sigurgöngu Tottenham í upphafi tímabilsins lauk í dag þegar Manchester United heimsótti liðið á White Hart Lane. Fyrir leikinn hafði Tottenham liðið unnið alla 4 deildarleiki sína og var þetta besta byrjun liðsins í 49 ár. Manchester menn höfðu ekki byrjað eins vel, tapað einum leik en hafa verið jafnt og þétt að ná fyrra formi. Það var því hörkuleikur á White Hart Lane þegar liðin mættust en Manchestermenn höfðu sigur úr bítum 3-1 og hirtu öll þrjú stigin. Defoe kom Tottenham yfir í leiknum strax á fyrstu mínútu leiksins með glæsilegu marki en Giggs, Anderson og Rooney sáu til þess að Manchester menn færu ekki tómhentir heim.

Harry stillti nánast upp sama liði í leiknum og byrjaði sigurleikinn gegn Birmingham fyrir hálfum mánuði. Eina breytingin var sú að Crouch kom inná fyrir Modric sem meiddist í þeim leik. Góðu fréttir dagsins voru þær að tveir leikmenn sem hafa verið að eiga við meiðsli eru á batavegi og tóku sæti á bekknum í þessum leik, þeir Gomes og Jenas. Nýjasta viðbótin í leikmannahópnum, Niko Kranjcar sem keyptur var á lokadegi félagskiptagluggans, fékk sömuleiðis sæti á bekknum. Liðið var því þannig stillt upp: Cudicini var í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, King, Bassong og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Palacios, Huddlestone og Keane og frammi þeir Defoe og Crouch. Á bekknum sátu þeir Gomes, Naughton, Hutton, Bentley, Jenas, Kranjcar og Pavlyuchenko.

 

Það var sannkölluð draumabyrjun sem leikmenn Tottenham fengu gegn núverandi Englandsmeisturum því strax á fyrstu mínútu þurfti Foster að sækja knöttinn í eigið mark. Ekotto gaf langan boltann inn í teig United manna þar sem Crouch stökk manna hæstur og skallaði boltann fyrir mitt markið þar sem Defoe tók glæsilega hjólhestaspyrnu og þrumaði boltanum í netið. Glæsilegt mark hjá þessum sjóðheita framherja sem er nú kominn með 5 mörk í deildinni það sem af er tímabilinu og staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Markið gaf leikmönnum Tottenham aukið sjálfstraust en Manchester menn er þó aldrei hægt að afskrifa, sama hversu svart útlitið er. Scholes átti skot að marki af löngu færi en boltinn fór vel framhjá markinu og Fletcher fékk svo gott færi en Cudicini gerði vel og varði glæsilega. Á hinum enda vallarins fékk Crouch góða sendingu frá Palacios og gaf fyrir markið en Defoe rétt missti af boltanum. Og það kom á daginn að Tottenham fékk að finna fyrir því að færin þarf að nýta gegn liði eins og Manchester United því tveimur mínútum síðar náðu þeir að jafna leikinn. Á 24. mínútu felldi Palacios Berbatov rétt fyrir utan teiginn og dómarinn dæmdi aukaspyrnu. Giggs tók aukaspyrnuna og hamraði boltanum hátt í hægra horn marksins og Cudicini gat lítið gert við því. Staðan því orðin 1-1. Markið setti leikmenn Tottenham vel útaf laginu og Manchester menn tóku öll völd á vellinum. Cudicini varði þó vel skot frá Berbatov og Bassong hreinsaði á marklínu eftir stórsókn frá Manchester mönnum. Crouch fékk ágætis færi á hinum enda vallarins en skalli hans fór rétt framhjá markinu eftir hornspyrnu sem Huddlestone tók. En þegar aðeins fjórar mínútur voru til leikhlés náðu United menn forystu í leiknum þegar þeir tóku stutta hornspyrnu og Scholes gaf fyrirgjöf inn í teiginn. Leikmenn Tottenham náðu að hreinsa boltann frá en þó ekki lengra en til Anderson sem þrumaði lágum bolta framhjá Cudicini í markinu. Staðan orðin 1-2 fyrir gestina og var það mikið áfall fyrir leikmenn Tottenham að fá þetta mark á sig rétt fyrir leikhlé.

 

Harry gerði eina skiptingu í hálfleik, Palacios fór af velli og Jenas kom inná í hans stað. Mögulega hefur Harry ekki viljað taka áhættuna á að Palacios yrði vikið af leikvelli því hann var kominn með gult spjald og baráttan mikil á miðjunni. Leikmenn Tottenham mættu ákveðnir til seinni hálfleiks staðráðnir í að gefast ekki upp þótt á móti blési. Keane fékk fínt færi í upphafi seinni hálfleiks en Vidic gerði vel þegar hann kom í veg fyrir að boltinn hafnaði í netinu. Á 54.mínútu fékk Jenas gott færi þegar hann þrumaði boltanum að markinu en Foster varði meistaralega í markinu. Stuttu síðar átti Crouch skalla að markinu en boltinn hafnaði í þverslánni. Þegar tæp klukkustund var liðin af leiknum var Paul Scholes vikið af leikvelli eftir brot á Huddlestone en fyrir það fékk hann sitt annað gula spjald í leiknum og þar með reisupassann. En þrátt fyrir að vera manni færri þá léku United menn góðan bolta og voru stórhættulegir í sóknarleik sínum. Á 66.mínútu fékk Rooney gott færi en Cudicini varði vel. Evra átti svo skot að marki sem hafnaði í hliðarnetinu. Harry gerði svo tvær breytingar með þriggja mínútna millibili, Hutton kom inná fyrir Corluka á 69.mínútu og Kranjcar kom inná fyrir Keane á 72. mínútu. En það var svo Rooney sem gerði út um leikinn þegar rétt rúmlega 10 mínútur voru til leiksloka. Boltinn barst til hans eftir að aukaspyrna Tottenham var hreinsuð við vítateig United manna. Tók hann á sprett og lék á bæði Ekotto og Hutton áður en hann renndi boltanum í netið framhjá Cudicini í markinu. Staðan orðin 3-1 og sigur United manna öruggur. Leikmenn Tottenham áttu engin svör við góðum leik hjá sterku liðið Manchester manna og sigurleikjahrina liðsins á White Hart Lane því á enda. Tottenham er því komið í 4.sæti deildarinnar eftir leiki dagsins með jafnmörg stig og liðin tvö frá Manchesterborg en með lakari markahlutfall.

 

Lið Spurs: Cudicini, Corluka (Hutton), King, Bassong, Ekotto, Lennon, Huddlestone, Palacios (Jenas), Keane (Kranjcar), Defoe, Crouch. Ónotaðir varamenn: Gomes, Naughton, Bentley, Pavlyuchenko.