Chelsea 3 – Tottenham 0

0
792

Það var alltaf ljóst að Tottenham átti erfiðan leik fyrir höndum þegar þeir mættu Chelsea á Brúnni á sunnudaginn. Tottenham hafði ekki unnið Chelsea á útivelli frá því í febrúar árið 1990. Chelsea hafði fyrir leikinn aukin heldur unnið 10 úrvalsdeildarleiki í röð. Til að bæta gráu ofan á svart stendur Tottenham nú í mikilli meiðslakrísu, og ekki batnaði ástandið í þeim málum með þessum leik. Harry Redknapp gerði þó nokkra breytingu á liðinu þrátt fyrir að aðeins ein breyting hafi orðið á leikmannavalinu frá leiknum gegn Manchester United um síðustu helgi. Jenas kom inn í stað Crouch og spilaði Harry því nokkurskonar 4-3-3 eða 4-3-2-1 leikkerfi þar sem Lennon og Keane voru hátt uppi á köntunum og Defoe fremstur. Það var því greinilegt að Harry ætlaði að standa við stóru orðin um að sækja á Chelsea.

 

Leikurinn fór fjörlega af stað fyrir Spurs og allt útlit fyrir að leikmenn væru mættir tvíefldir til leiks eftir tap gegn Englandsmeisturunum um síðustu helgi. Reyndar voru það leikmenn Chelsea sem áttu fyrsta hættulega færi leiksins á 8. mínútu þegar Bosingwa komst að vítateigslínunni vinstra megin og lét skotið vaða sem small í þverslánni. Tottenham virtist þó hafa undirtökin fyrsta korterið. Á 11 mínútu átti fengu Spurs úrvalstækifæri þegar Palacios átti frábæra stungusendingu á Defoe sem var kominn einn inn fyrir vörn Chelsea, en frábær viðbrögð Petr Cech í markinu komu í veg fyrir að Defoe kæmi Spurs yfir. Tveimur mínútum síðar átti Huddlestone þrumuskot af 20 m. færi sem Cech þurfti að hafa sig allan við að verja. Öðrum 2 mínútum síðar átti svo Jenas frábært skot að marki sem smaug hárfínt fram hjá stönginni. Eftir þetta datt leikurinn svolítið niður og Chelsea fóru að ná betri tökum á leiknum.  Eftir 32 mínútna leik kom svo fyrsta mark leiksins. Drogba átti sendingu inn í teiginn þar sem Ashley Cole náði að stinga sér fram hjá Corluka og stanga boltann í netið fram hjá Cudicini í markinu. Mínútu síðar virtist Defoe eiga að fá aukaspyrnu þegar Carvalho og Terry tvímenntu í tæklingu á Defoe rétt fyrir utan vítateig Chelsea, huglaus dómari leiksins leit hinsvegar undan. Staðan í leikhléi því 1-0 fyrir heimamönnum en Tottenham ennþá inn í leiknum.

Síðari hálfleikur byrjaði ekki gæfulega fyrir okkur.  á 48. mínútu snúa leikmenn Chelsea vörn í sókn og King tekur á rás til baka í vörnina en hnígur niður og grípur um löppina á sér og við það kemst Lampard í gott færi en skítur framhjá af 15 metra færi. King er studdur af leikvelli og Harry setur Hutton inn í staðinn og færir þá Corluka í miðvörðinn og Hutton tekur stöðu hans í hægri bakverði. Það var því ljóst að róðurinn yrði heldur betur þungur fyrir leikmenn Spurs án King. Á 55. mínútu kemur svo vendipunkturinn í leiknum fyrir Spurs. Keane sleppur einn inn fyrir vörn Chelsea og er kominn einn á móti markmanni þegar Carvalho tæklar Keane beint í fæturna. Keane reynir að standa tæklinguna af sér en nær því ekki og fellur til jarðar. Howard Webb dómari leiksins, sem Tottenham er ekki góðu kunnugur eftir að hafa gefið ranglega Man U. vítaspyrnu á síðasta tímabili gegn Spurs í 5-2 sigri, var í góðri aðstöðu til að sjá brotið en skorti kjark til að dæma vítaspyrnu. Keane hljóp rakleitt í átt að dómaranum og spurði kaldhæðnislega af hverju hann gæfi sér þá ekki spjald fyrir leikaraskap, en dómarinn ansi því engu. Við þetta virtust Spurs missa vonina og nokkrum mínútum síðar skoraði Ballack annað mark leiksins. Það tók svo Chelsea aðeins 5 mínútur að skora næsta mark. Drogba fékk sendingu upp hægri kantinn og Corluka og Cudicini virðast báðir fara í tæklinguna sem Corluka setur í fætur Drogba og boltinn berst fyrir framan markið þar sem Drogba leggur boltann auðveldlega í netið. Staðan því 3-0 Tveim mínútum eftir markið eða á 67. mínútu gerði Harry skiptingu þegar hann tók Defoe af velli og setti Crouch inná. Þetta virtist hressa svolítið upp á leik Tottenham en ekki nóg til að valda vörn Chelsea teljandi vandræðum. Crouch átti að mati áhorfenda að fá vítaspyrnu þegar Cole keyrði inn í Crouch af einskærum ásetningi þegar Crouch ætlaði að skalla boltann í teig Chelsea manna. Sem fyrr var Webb ekki á þeim buxunum að gefa Spurs nokkuð. En Chelsea menn munu eflaust benda á að þeir hefðu einnig átt að fá vítaspyrnu þegar Ekotto varði boltann með höndum innan vítateigs.

 Á 73 mínútu komust leikmenn Chelsea nálægt því að bæta fjórða markinu við þegar Mikel átti skot að marki sem Cudicini varði, en náði ekki að halda boltanum og boltinn stefndi í markið. Skjót viðbrögð Cudicini gerðu það að verkum að hann náði að hreinsa boltann af marklínunni. Tveim mínútum síðar urðu Tottenham fyrir öðru reiðarslagi þegar Bassong lá vankaður í grasinu eftir samstuð við leikmann Chelsea sem olli því að Bassong datt harkalega til jarðar. Bassong var borinn af velli með hálskraga í börum meðan sjúkraþjálfarar gáfu honum súrefni. Með því var nokkuð ljóst að vonir Tottenham urðu að engu þar sem enginn miðvörður var nú í liðinu. Lokatölurnar urðu því 3-0 sigur Chelsea í erfiðum leik, og stuðningsmenn Tottenham héldu gramir heim yfir tapinu, meintu óhlutdrægni dómarans, meiðslavandræða liðsins og ekki síst slökum leik sinna manna.

 

Liðið: Cudicini, Corluka, King (Hutton 49), Bassong (Kranjcar 82), Ekotto, Lennon, Jenas, Huddlestone, Palacios, Keane, Defoe (Crouch 67)

 

 

EKG