Stórsigur í Carling Cup

0
611

Tottenham heimsótti Preston North End á heimavöll þeirra, Deepdale í 3. umferð Carling bikarsins. Preston hefur staðið sig vel á heimavelli það sem af er leiktíðar og voru ósigraðir þar á þessu tímabili. Tottenham átti í töluverðum meiðslavandræðum sem olli Harry nokkrum vandræðum þegar kom að vali á liðinu. Gleðifréttir dagsins voru þær að Dawson hefur jafnað sig á ökklameiðslum sem hann varð fyrir á undirbúningstímabilinu og var mættur í byrjunarliðið og sömuleiðis léku Gomes og Bale eftir fjarveru vegna meiðsla. Leikurinn var fjörugur frá fyrstu mínútu en Tottenham vann að lokum stórsigur, 5-1 líkt og í síðasta bikarleik gegn Doncaster. Peter Crouch skoraði þrennu í leiknum en hin tvö mörkin gerðu þeir Defoe og Keane. Tottenham er því komið í 4.umferð en dregið verður í næstu umferð í hádeginu á laugardag.

 

Harry gerði 7 breytingar á liðinu frá leiknum gegn Chelsea síðastliðinn sunnudag, en hann hefur gefið þeim sem lítið hafa spilað í deildinni tækifæri í bikarnum. Gomes, Bale og Dawson voru allir mættir til leiks eftir mislanga fjarveru vegna meiðsla og voru það gleðitíðindi. Liðinu var þannig stillt upp að Gomes stóð í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Hutton, Dawson, Huddlestone og Bale. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, Palacios og Giovani. Frammi byrjuðu þeir Defoe og Crouch. Á bekknum sátu þeir Walker, Corluka, Dervite, Naughton, Rose, Lennon og Keane.

 

Leikmenn Preston mættu ákveðnir til leiks og strax á upphafsmínútunum fengu þeir hættulegt færi. Gomes hreinsaði frá marki eftir sókn Preston en boltinn barst til Jon Parkin sem náði góðu skoti að marki, en boltinn fór framhjá. Stuttu síðar tók Giovani á sprett upp vinstri kantinn og skaut að marki en boltinn hafnaði í þverslánni. Leikmenn Preston áttu svo gott færi sem Gomes varði meistaralega, en Jones skallaði í átt að marki eftir góða fyrirgjöf inn í teiginn og stefndi boltinn í markið, efst í hægra horninu. En Gomes teygði sig í boltann og náði að slá hann frá markinu. Það dró svo til tíðinda á 14. mínútu en þá kom fyrsta mark leiksins. Bale átti góðan sprett upp vinstri kantinn og gaf boltann fyrir markið þar sem Crouch var vel staðsettur og átti ekki í vandræðum með að skjóta boltanum framhjá markverði Preston. Staðan orðin 0-1 fyrir Tottenham. Á 17. mínútu varð Giovani fyrir meiðslum eftir slæma tæklingu frá Wallace, leikmanni Preston. Hann fékk aðhlynningu í töluverðan tíma og reyndi að halda áfram í leiknum en þurfti að lokum að fara af velli. Lennon kom inná í hans stað. Parkin og Jones fengu báðir færi til að jafna leikinn en Gomes var vel vakandi í markinu. Á 37.mínútu bættu leikmenn Tottenham við öðru marki þegar Jenas sendi boltann inn í teiginn á Defoe, sem þrumaði að marki. Markvörður Preston varði skotið en boltinn barst aftur út í teiginn til Defoe sem skallaði hann í markið. Staðan orðin 0-2. Á lokamínútum fyrri hálfleiks fengu bæði lið nokkur færi en mörkin urðu ekki fleiri og staðan því 0-2 í hálfleik, Tottenham í vil.

 

Seinni hálfleikur hófst á fjörugum nótum en bæði lið reyndu ákaft að skora. Markvörður Preston þurfti að hafa sig allan við til að verja skot frá Huddlestone og Lennon og Gomes stóð sig sömuleiðis vel á hinum enda vallarins. Þegar um 20 mín voru eftir af leiknum gerði Harry skiptingu, Defoe fór af velli og Keane kom inná í hans stað. Stuttu síðar fékk Crouch gott færi til að bæta við öðru marki en skot hans fór yfir. Á 77. mínútu náði hann þó loks að skora sitt annað mark í leiknum og þriðja mark Tottenham. Palacios sendi boltann á Lennon á vinstri kantinum sem tók á sprett upp kantinn og gaf fyrir markið þar sem boltinn barst til Crouch á fjarstönginni og hann skoraði af öryggi. Staðan orðin 0-3.  Þegar 10 mínútur voru til leiksloka gerði Harry lokaskiptingu sína í leiknum, en Dawson fór af velli og Corluka kom inná í hans stað.  Fjórum mínútum síðar náðu leikmenn Preston að svara fyrir sig með marki frá varamanninum Brown. Á 87.mínútu átti Huddlestone góða sendingu á Keane sem átti ekki í vandræðum með að koma boltanum í net Preston manna og staðan því orðin 1-4 gestunum í vil. En leikmenn Tottenham voru ekki hættir og Crouch náði að fullkomna þrennu sína á lokamínútunum. Lennon gaf lága sendingu inn í teiginn og þar náði Crouch að koma boltanum í netið með hælspyrnu í miðjum teignum. Glæsilegt mark og góður endir á góðu kvöldi. Liðið er því komið áfram í 4. umferð en dregið verður í næstu umferð í hádeginu á laugardaginn.

 

Lið Spurs: Gomes, Hutton, Dawson (Corluka), Huddlestone, Bale, Bentley, Jenas, Palacios, Giovani (Lennon), Defoe (Keane), Crouch. Ónotaðir varamenn: Walker, Dervite, Naughton, Rose.