Tap gegn Stoke

0
836

Tottenham tók á móti Stoke á White Hart Lane í leik helgarinnar og voru það gleðitíðindi fyrir stuðningsmenn Tottenham að Woodgate spilaði loksins sinn fyrsta leik á tímabilinu eftir erfið meiðsli. En leikurinn reyndist ekki færa Tottenham gæfu því Woodgate þurfti að fara af velli snemma leiks vegna meiðsla og sömuleiðis Lennon þegar stutt var til leiksloka. Leikmenn Tottenham sköpuðu sér töluvert af góðum færum en þetta var einn af þessum dögum þar sem boltinn vildi ekki inn og náðu leikmenn Stoke svo að stela sigrinum á lokamínútunum og hirða þar með öll stigin. Leiknum lauk því 0-1 og var það Whelan sem skoraði markið. Önnur úrslit helgarinnar voru þó liðinu hagstæð og féll liðið aðeins um eitt sæti á stigatöflunni og situr því í fjórða sæti deildarinnar.

 

Harry gerði nokkrar breytingar á liðinu en meiðsli og leikbann setti strik í reikninginn í liðsvali dagsins. Liðið var þannig skipað að Gomes stóð á milli stanganna og vörnin var skipuð þeim Corluka, Woodgate, Bassong og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Palacios, Huddlestone og Kranjcar og frammi þeir Keane og Crouch. Bekkurinn var skipaður þeim Cudicini, Dawson, Bale, Hutton, Naughton, Jenas og Pavlyuchenko.

 

Andrúmsloftið á White Hart Lane var magnað stuttu fyrir leik þegar minning Bill Nicholsson var heiðruð en 5 ár voru liðin frá andláti hans sl. föstudag. En það voru gestirnir sem byrjuðu leikinn betur og strax á fyrstu mínútu áttu þeir dauðafæri en Woodgate kom til bjargar. Etherington, fyrrum leikmaður Tottenham, gaf sendingu fyrir markið þar sem Beattie reyndi að skalla boltann inn. Woodgate náði þó til boltans á undan en lenti í samstuði við Beattie í leiðinni er þeir skullu höfðum saman. Woodgate spilaði áfram eftir smá aðhlynningu frá læknateymi Tottenham en á 13. mínútu neyddist hann að fara af velli þar sem hann hlaut heilahristing. Dawson kom inná í hans stað og tók stöðu við hlið Bassong í vörninni. Stuttu áður en Woodgate fór af velli átti Crouch góðan skalla að marki en markvörður Stoke náði að blaka boltanum framhjá. Á 23. mínútu átti Kranjcar gott skot að marki eftir sendingu frá Lennon en aftur átti markvörður Stoke klassa markvörslu. Stuttu síðar fékk Bassong tækifæri en skot hans fór framhjá. Á 26. mínútu gaf Lennon góða fyrirgjöf fyrir markið þar sem Crouch stökk manna hæstur og skallaði að marki. Lítið virtist geta komið í veg fyrir að boltinn færi í netið en Beattie náði að hreinsa á marklínu. Stuttu síðar fengu leikmenn Tottenham annað dauðafæri en boltinn vildi ómögulega inn í netið. Kranjcar skaut löngu skoti að marki og fór boltinn framhjá markverði Stoke en hafnaði í stönginni. Leikmenn Stoke vörðust vel en Tottenham var ávallt líklegri til að skora í fyrri hálfleik. En ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik og því staðan jöfn 0-0 í leikhléi.

 

Seinni hálfleikur hófst á svipuðum nótum og sá fyrri, Tottenham sótti stíft og leikmenn Stoke vörðust af fullum krafti. Crouch fékk 2 góð færi og áttu leikmenn Stoke í fullu fangi með að aðstoða markvörðinn við að halda boltanum frá markinu.  Corluka fékk einnig gott færi en boltinn vildi bara ekki inn. Harry kaus að gera breytingu á liðinu til að freista þess að koma boltanum yfir marklínu Stoke manna og setti hann Pavlyuchenko inná í stað Keane. Þegar 20 mínútur voru til leiksloka gerði Harry svo þriðju og síðustu skiptingu sína þegar Jenas kom inná í stað Huddlestone. En Tottenham varð svo fyrir því áfalli á 77.mínútu að Lennon varð fyrir ökklameiðslum þegar hann var felldur af Whelan og gat ekki haldið áfram leik. Þar sem Harry var búinn að nota allar sínar skiptingar neyddust leikmenn Tottenham að leika einum færri síðustu mínúturnar. Það reyndist Tottenham dýrkeypt því leikmenn Stoke sóttu í sig veðrið og átti Tuncay hættulegt færi, það fyrsta síðan á þriðju mínútu leiksins. En honum tókst þó ekki að skora. En það tókst Whelan að gera þegar 5 mínútur voru til leiksloka. Fuller náði fyrirgjöf fyrir markið af vinstri kantinum þar sem Whelan náði til boltans og þrumaði honum í markið framhjá Gomes. Staðan orðin 0-1 fyrir gestina og þannig urðu lokatölur. Segja má að sigur gestanna hafi mögulega verið óverðskuldaður en þeim tókst þó að skora ólíkt leikmönnum Tottenham og það eru mörkin sem telja. Vikan framundan er svo annasöm hjá Tottenham því liðið tekur á móti Everton í Carling Cup á þriðjudag og heimsækir svo erkifjendur sína í Norður London næstu helgi.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate (Dawson), Bassong, Ekotto, Lennon, Huddlestone (Jenas), Palacios, Kranjcar, Keane (Pavlyuchenko), Crouch. Ónotaðir varamenn: Cudicini, Bale, Hutton, Naughton.