Tottenham tilkynnti í dag að félagið hafi komist að samkomulagi við Middlesbrough um lánssamning á Kyle Naughton. Naughton kom til liðsins sl. sumar en hefur ekki fengið að spila mikið enda mikil barátta um stöður í liðinu. Hann hefur þó spilað 3 leiki fyrir félagið en hefur nú verið lánaður til Middlesbrough út tímabilið til þess að öðlast meiri leikreynslu.
Félagið tilkynnti einnig að það hefði komist að samkomulagi við Exeter um kaup á Troy Archibald-Henville. Hann fór upphaflega á lánssamningi til þeirra í janúar 2009 og stóð sig vel þar. Í júlí 2009 gekk hann aftur til liðs við þá á lánssamningi en nú hafa félögin komist að samkomulagi um kaup á leikmanninum. Við óskukm Archibald-Henville alls hins besta í framtíðinni.






