Mikilvægur sigur í magnþrungnum leik

0
725

Tottenham tók á móti Everton í þýðingamiklum leik á WHL á sunnudaginn. Everton hafði fyrir leikinn verið á miklu skriði og vann m.a Englandsmeistarana með tveggja marka mun á dögunum. Með sigri myndi Everton blanda sér í baráttu um 4. sætið en Spurs mátti að sama skapi ekki við því að misstíga sig í baráttunni um meistaradeildarsætið. Því var ljóst að bæði lið myndu leggja allt í sölurnar í þessum leik. Harry Redknapp gerði 2 breytingar á liðinu sem mætti Bolton fyrr í vikunni. Ekotto vék fyrir Corluka sem hafði jafnað sig á veikindum sem komu í veg fyrir þátttöku hans í leiknum gegn Bolton og Kranjcar kom inn fyrir Bentley sem hafði orðið fyrir meiðslum í leiknum gegn Bolton. Liðið leit því svona út: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Bale, Kranjcar, Huddlestone, Palacios, Modric, Pavlyuchenko, Defoe

 

Fyrstu tíu mínútur leiksins börðust liðin um yfirráð á vellinum. Það var þó fljótt ljóst hvort liðið hafði undirtökin. Það tók Spurs aðeins rúmar 10 mínútur að skora fyrsta markið. Defoe átti sendingu fyrir markið og hver annar en Roman Pavlyuchenko var mættur til að pota boltanum í netið. Þetta var 5. markið hans á einni viku og óhætt að segja að Rússinn sé sjóðandi heitur fyrir framan markið þessa dagana. Staðan því 1-0 eftir aðeins um 11 mínútna leik. Evertonmenn áttu svo hættulegt færi á 17. mínútu þegar Gomes reyndi að grípa hornspyrnu Everton en missti boltann fyrir fætur Yakubu sem stóð fyrir framan markið. Dawson fyrirliði Tottenham var mættur og tók dýfu fyrir boltann og kom í veg fyrir að Everton jöfnuðu metin. Þessu fylgdu 2 góð færi Tottenham það fyrra átti Pavlyuchenko og það seinna Kranjcar. Á 29. mínútu kom annað mark Spurs og það var af dýrari gerðinni. Króatarnir þrír Kranjcar, Corluka og Modric áttu góðan samleik upp hægri kantinn sem endaði með því að Modric fékk boltann inní teig Everton og skaut boltanum upp yfir Howard og í þverslánna og inn, þetta verður tekið til greina sem mark tímabilsins hjá Tottenham. Tottenham réð ferðinni út seinni hálfleik og fékk nokkur góð færi og hefði auðveldlega getað bætt þriðja markinu við þegar Bale átti góða sendingu inn í teiginn en Defoe var aðeins of stuttfættur til að ná til knattarins og pota honum í markið. Staðan í hálfleik því verðskulduð 2-0 forusta Spurs og ljóst að Moyes þurfti að leggja sínum mönnum línurnar í hálfleik.

 

Það var engu líkara en að leikmenn Everton hefðu fengið vítamínsprautu í hálfleik því þeir mættu mun ákveðnari til leiks í seinni hálfleik. Strax á 47. mínútu fengu Evertonmenn fínt færi Heitinga átti gott skot við vítateiginn sem Gomes gerði vel með að verja. Á 50. mínútu urðu Spurs fyrir áfalli þegar Huddlestone var borinn af leikvelli meiddur. Kaboul kom inná í hans stað. 5 mínútum síðar urðu Spurs fyrir öðru áfalli. Rockwell átti skalla fyrir markið eftir hornspyrnu. Yakubu var réttur maður á réttum stað og skoraði. Everton var því komið aftur inn í leikinn. Eftir þetta áttu Everton leikinn og aðeins spurning hvort varnarmúr Tottenham héldi. Everton sótti stíft og fengu mjög góð færi. Á 71. mínútu kom Eiður inná í stað Defoe. Á 76. mínútu voru heilladísirnar heldur betur í liði með Tottenham. Rodwell átti góða sendingu fyrir markið og Landon Donovan var mættur á fjarstöng og átti að skora einn fyrir opnu marki, en klúðraði því á undraverðan hátt. Það var ansi hátt spennustigið í leiknum síðustu mínúturnar og ekki fyrir hjartveika að fylgjast með. Tottenham reyndi að tefja leikinn á meðan Everton sóttu ákaft og reyndu að jafna metin. Það var ekki til að róa taugarnar þegar í ljós kom að uppbótartíminn var 6 mínútur. Leikmenn og stuðningsmenn Tottenham önduðu svo léttar þegar dómarinn loks flautaði leikinn af. Lokatölur 2-1 fyrir Spurs og mega Tottenham teljast heppnir að haldið forustunni allt til loka.

Liðið: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Bale, Kranjcar, Huddlestone (Kaboul 53), Palacios, Modric, Defoe (Eiður 71), Pavlyuchenko (Crouch 82)

 

Ónotaðir varamenn: Alnwick, Ekotto, Dervite, Walker

 

 

EKG