Stórsigur í bikarnum gegn Bolton

0
725

Eftir 1-1 jafntefli á Reebok vellinum í FA bikarnum var komið að Bolton að mæta á WHL þar sem skorið var úr um hvort liðið kæmist áfram í næstu umferð. Stjórar beggja liða gerðu nokkrar breytingar á liðunum. Stuðningsmönnum Tottenham var skiljanlega létt að sjá markahrellinn Kevin Davies á bekknum hjá Boltonmönnum. En hann skoraði einmitt mark Boltonmanna gegn Tottenham í 1-1 jafnteflinu. Elmander sem átti stoðsendinguna á Davies í þeim leik og var okkar mönnum einnig erfiður ljár í þúfu var einnig hvíldur. Það var ljóst að Coyle stjóri Bolton ætlaði að leggja meiri áherslu á deildina þar sem þeir eru í miklum fallslag, og hvíla því lykilmenn. Harry Redknapp gerði 4 breytingar á liði sínu frá leiknum gegn Wigan um helgina. Pavlyuchenko sem kom inn með látum gegn Wigan fékk að byrja leikinn í stað Crouch. Ekotto var mættur aftur úr meiðslum og tók stöðu Corluka í hægri bakverðinum. Bassong tók stöðu fyrirliðans Ledley King og loks var það Luka Modric sem tók stöðu landa síns Kranjcar. Eiður Smári fékk ekki að byrja leikinn en var á bekknum. Liðið var þá þannig skipað: Gomes, Ekotto, Dawson, Bassong,Bale, Bentley, Palacios, Huddlestone, Modric, Pavlyuchenko, Defoe.

 

Í upphafi leiks börðust bæði lið um yfirráð á vellinum. Bæði lið fengu færi á víxl. Fyrsta færi leiksins átti enginn annar en miðvörðurinn Bassong á 8. mínútu þegar hann fékk boltann óvaldaður og skaut þrumufleyg af tæpum 30 metrum sem fór hárfínt framhjá markinu. Á 13 mínútu áttu Boltonmenn fínt skot sem Gomes þurfti að blaka aftur fyrir endamörk. Á 17. mínútu átti Palacios frábært skot þegar hann fékk boltann innan vítateigs og tók hann viðstöðulaust á lofti, en boltinn smaug yfir slánna. Á 20. mínútu áttu Bolton gott skot sem fór rétt framhjá einnig. En á 23. mínútu kom fyrsta mark leiksins. Modric átti flotta sendingu á Pavlyuchenko sem var rétt fyrir utan vítateig. Pavlyuchenko náði að snúa af sér Knight varnarmann Bolton og skaut boltanum framhjá Jaaskelainen í markinu og í niður í hægra markhornið. staðan því orðin 1-0 Mínútu síðar voru Boltonmenn nálægt því að jafna metin en skot Gardners fór hárfínt framhjá stönginni. Á 27. mínútu vildu Spurs fá vítaspyrnu þegar Boltonmaður handlék knöttinn innan vítateigs, en Walton annars ágætur dómari leiksins hafði engan áhuga á því. Á 35. mínútu dró svo aftur til tíðinda þegar Palacios átti sendingu fyrir markið. Defoe renndi sér á eftir boltanum en Jaaskelainen var fyrri til knattarins, en knötturinn fór af fæti markmannsins og í netið. Staðan því orðin 2-0 fyrir Spurs sem voru nú komin með góð tök á leiknum og góða forustu. Mörkin urðu ekki fleiri í fyrri hálfleik og Tottenham fór því inn í leikhlé með þægilega forustu.

 

Harry Redknapp gerði eina breytingu á liðinu í hálfleik. Eiður Smári kom inná í stað Defoe. Eiður var ekki lengi að hafa áhrif á leikinn því á 47. mínútu kom 3 mark Tottenham í leiknum. Eiður hafði dregið sig inn á miðjuna og fékk boltann og átti góða sendingu á Bale sem gaf boltann fyrir markið. O‘Brien renndi sér fyrir þversendinguna með þeim afleiðingum að hann skoraði sjálfsmark. Staðan því orðin 3-0 og Boltonmenn búnir að senda knöttinn í tvígang í eigið net. Á 60. mínútu gerðist svo umdeilt atvik. Huddlestone átti góða stungusendingu inn fyrir varnarlínu Bolton og Eiður tók á móti boltanum og skoraði af yfirvegun, en línuvörðurinn hafði flaggað rangstöðu. Í endursýningu sást að þetta var á gráu svæði. En ákvörðun dómarans stóð og Eiður þarf því að bíða betri tíma eftir fyrsta marki sínu fyrir Tottenham. Eftir þetta fóru Bolton að sækja meira og meira jafnræði var með liðinum næstu mínúturnar. Bolton fengu ágætis færi en nýttu þau ekki. Á 88. mínútu  kom svo 4 og síðasta markið. Huddlestone fann Rose á hægri kantinum, en Rose hafði komið inná sem varamaður á 70. mínútu. Rose brunaði upp kantinn og gaf boltann inn í teig þar sem Pavlyuchenko var réttur maður á réttum stað og skoraði af öryggi og gulltryggði Tottenham áframhaldandi þátttöku í bikarnum. Bolton menn gáfust upp eftir þetta og lokafæri leiksins var við mark Boltonmanna á 94. mínútu. Varamaðurinn Kranjcar átti þá gott skot að marki sem fór aðeins nokkrum sentímetrum framhjá markinu. Lokatölur leiksins því 4-0 og Tottenham mætir því Fulham í næstu umferð FA bikarsins.

 

Liðið: Gomes,Ekotto, Dawson, Bassong, Bale, Bentley (Rose 70), Huddlestone, Palacios (Kranjcar 60), Modric, Defoe (Eiður 45), Pavlyuchenko

Ónotaðir varamenn: Alnvick, Dervite, Kane, M‘Poku

EKG