Tottenham heimsótti lið Wigan í leik helgarinnar en fyrri leikur þessara liða á leiktíðinni gleymist seint, en þar lagði Tottenham Wigan að velli með 9 mörkum gegn 1. Tottenham var fyrir enn í baráttu um 4. sætið á meðan Wigan menn berjast við að halda sér fyrir ofan fallsætin. Vallaraðstæður voru skelfilegar því völlurinn líktist frekar kartöflugarði heldur en fótboltavelli en Tottenham menn höfðu á endanum einnig betur í þessari viðureign. Leiknum lauk með 0-3 sigri Tottenham og mörkin skoruðu þeir Jermain Defoe og Roman Pavlyuchenko (2). Tottenham endurheimti 4.sætið þar sem Liverpool og Man.City gerðu einungis jafntefli.
Harry gerði eina breytingu á liðinu frá leiknum gegn Bolton síðastliðna helgi, Kranjcar kom inn í byrjunarliðið í staðinn fyrir Modric. Liðinu var því þannig stillt upp: Gomes stóð í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, King og Bale. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Palacios og Kranjcar og framlínuna skipuðu sem fyrr þeir Defoe og Crouch. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Bassong, Kaboul, Modric, Rose, Eiður Smári og Pavlyuchenko.
Leikurinn fór rólega af stað og lítið um merkileg færi fyrsta stundarfjórðung leiksins enda bæði lið að venjast afar slæmum vallaraðstæðum. Á 15.mínútu átti Bentley fyrsta skot Tottenham sem hitti á markrammann en Kirkland náði til boltans. Á hinum enda vallarins þurfti Gomes að hafa sig allan við á 22. mínútu þegar Rodallega átti gott skot að marki, en Gomes sló boltann yfir markið. En á 27.mínútu leiksins dró til tíðinda. Crouch gaf boltann á Kranjcar sem var staðsettur rétt fyrir utan vítateiginn vinstra megin. Kranjcar gaf boltann áfram á Bale sem kom á sprettinum upp vinstri kantinn og hann sendi góða sendingu fyrir markið þar sem Defoe átti ekki í vandræðum með að pota boltanum í netið. Í endursýningu má sjá að Defoe var fyrir innan þegar sendingin kom og hefði því réttilega átt að dæma markið af sökum rangstöðu. En línuvörðurinn sá ekkert athugavert við markið og því stóð það og Tottenham komið yfir 0-1 og var þetta 22. mark Defoe á tímabilinu í öllum keppnum. Lítið var um hættuleg marktækifæri það sem eftir lifði hálfleiks en harka færðist í leikinn og fengu m.a. Bentley og Defoe gul spjöld. Staðan í hálfleik var því 0-1, Tottenham í vil.
Engar breytingar voru gerðar í hálfleik og seinni hálfleikurinn hófst á svipuðum nótum og þeim fyrri lauk. Corluka var nálægt því að komast í gott færi en Kirkland náði til boltans á undan honum. Defoe féll inni í teig stuttu síðar eftir baráttu við Caldwell og vildi fá víti en dómarinn var ekki á sama máli, enda hefði það verið ansi harður dómur. Á 52.mínútu leiksins neyddist Harry til að gera fyrstu skiptingu sína í leiknum þegar Ledley King meiddist á hægra læri. Bassong kom inná í hans stað. Moses kom inná fyrir Wigan á sama tíma og hann var ekki lengi að koma sér í færi og átti gott skot að marki sem fór þó beint á Gomes. Þegar rúmlega klukkustund var liðin af leiknum komst Defoe einn á móti Kirkland eftir góða sendingu frá Kranjcar en Kirkland náði að koma í veg fyrir að boltinn hafnaði í netinum með fótum sínum. Sex mínútum síðar átti N´Zogbia skot á mark Tottenham en boltinn fór rétt yfir markið. Á 69.mínútu var komið að næstu skiptingu hjá Harry en þá kom Modric inná og Kranjcar fór af velli. Modric var ekki lengi að detta í gang og strax í næstu sókn átti hann góða sendingu á Defoe inni í teig eftir gott samspil við Bale. Defoe náði þó ekki góðu skoti að marki og staðan því enn 0-1, gestunum í vil. Enn færðist harka í leikinn og bæði Dawson og Huddlestone höfðu nælt sér í gul spjöld þegar rúmlega stundarfjórðungur var til leiksloka. Crouch komst í ágætt færi inni í teig eftir sendingu frá Defoe en Kirkland var vel vakandi og náði til boltans. Stuttu síðar fór markaskorarinn litli af velli og inná í hans stað kom Roman Pavlyuchenko. Kirkland var enn og aftur í eldlínunnni á móti Crouch þegar rúmlega 10 mínútur voru til leiksloka, en þá komst Crouch einn inn fyrir varnarlínu Wigan manna en Kirkland varði vel skot hans. Á hinum enda vallarins skapaðist nokkur hætta við mark Tottenham þegar Gomes náði ekki að halda boltanum eftir skot frá McCarthy. Rodallega náði til boltans en Gomes var fljótur upp og varði vel. Á 83.mínútu átti Modric þrumuskot að marki sem hafnaði í stönginni og fór þaðan beint út í fang Kirkland. En mínútu síðar var lítið annað sem Kirkland gat gert en að hirða boltann úr eigin neti. Modric vann boltann og lék á Melchiot, renndi svo boltanum á Pavlyuchenko sem skoraði framhjá Kirklandi í markinu. Staðan orðin 0-2 fyrir Tottenham. Þegar venjulegur leiktími var við það að renna út vildu leikmenn Tottenham fá vítaspyrnu en þeir vildu meina að Scharner hefði handleikið boltan innan teigs. Hvorki dómari né línuvörður voru sammála því og leikurinn hélt því áfram. Fjórum mínútum var bætt við venjulegan leiktíma og Pavlyuchenko nýtti þann tíma vel. Á 93.mínútu fengu leikmenn Tottenham aukaspyrnu og Huddlestone sendi boltann inn í teiginn á Pavlyuchenko. Hann skallaði að marki en Kirkland náði að verja. Boltinn barst þó aftur út til Pavlyuchenko sem náði á endanum að koma boltanum í netið. Staðan orðin 0-3 fyrir Tottenham og þannig urðu lokatölur. Tottenham endurheimti með þessum sigri 4.sætið þar sem hvorki City né Liverpool náðu að hirða 3 stig í viðureign helgarinnar.
Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, King(Bassong), Bale, Bentley, Huddlestone, Palacios, Kranjcar (Modric), Defoe (Pavlyuchenko), Crouch. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Kaboul, Rose, Eiður Smári.
SAJ






