Jafntefli í kaflaskiptum leik

0
757

Það var búist við jafnri og harðri viðureign á Reebok vellinum í Bolton þegar Tottenham kom í heimsókn í 5. umferð bikarkeppninnar um helgina. Bæði liðin höfðu tapað leik í vikunni í deildinni. Bolton lá á gegn Manchester City og Tottenham tapaði fyrir Úlfunum. Bæði liðin ætluðu sér því sigur í þessum leik og tefldu fram sínu sterkasta liði. Harry Redknapp gerði 5 breytingar frá tapinu gegn Wolves Kaboul, Bassong, Jenas, Kranjcar og Eiður var skipt út fyrir Corluka, King, Palacios, Modric og Crouch. Byrjunarliðið leit því svona út gegn Bolton: Gomes, Corluka, Dawson, King, Bale, Bentley, Palacios, Huddlestone, Modric, Defoe, Crouch. Eiður Smári var á varamannabekknum ásamt Alnwick, Pavlyuchenko, Jenas, Dervite, Bassong, Rose

Frá fyrstu mínútu tók Bolton leikinn í sínar hendur. Á 9. mínútu áttu Bolton úrvalsfæri þegar Taylor hitti boltann illa beint fyrir framan markið, Elmander fylgdi á eftir með góðu skoti sem Dawson náði að koma í veg fyrir að færi á rammann og boltinn fór aftur fyrir endamörk. Næsta hættulega færi leiksins kom á 15. mínútu og þar voru Bolton aftur á ferð. Elmander lék á rangstöðugildru Tottenham, Kevin Davies var mættur inn í vítateiginn en Elmander ákvað að reyna að klára færið sjálfur í mun verri aðstöðu og skaut boltanum upp í stúku. Á 25. mínútu kom næsta hættulega færi leiksins og enn og aftur voru það Bolton sem sóttu. Taylor átti þá fína aukaspyrnu sem stefndi í markið en Gomes var vel á verði og náði að blaka boltanum aftur fyrir endamörk. Markið lá í loftinu hjá Boltonmönnum og á  34. mínútu kom loks markið. Elmander átti gott þríhyrningaspil við Lee á vinstri kantinum og komst upp vinstri kantinn þar sem hann sendi boltann inn í teiginn þar sem Davies var mættur og stýrði boltanum í netið. Staðan því orðin 1-0 fyrir heimamenn. Fátt markvert gerðist það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Tottenham fóru því með skottið á milli lappanna inn til búningsherbergis og máttu í raun vera þakklátir fyrir að staðan hafi ekki verið verri.

 

Boltonmenn hófu síðari hálfleikinn líkt og þann fyrri. Eftir rúmlega tveggja mínútna leik áttu Boltonmenn hættulegt færi þegar Davies átti fast skot sem hafði viðkomu í Dawson og þaðan rétt framhjá markinu. Djúpt andvarp heyrðist frá stuðningsmönnum Tottenham sem voru orðnir ansi taugaspenntir. Eftir um 5 mínútna leik komust leikmenn Bolton aftur í gott færi þegar Elmander var kominn einn á móti Gomes í markinu en færið var heldur þröngt og því hafnaði knötturinn í hliðarnetinu. Það fór hinsvegar að lifna yfir leik Tottenhammanna á 55. mínútu. Bentley átti þá sendingu af hægri kantinum Jaaskelainen hljóp út í teig og reyndi að grípa sendinguna en Crouch var mættur á svæðið og náði ágætisskalla að marki sem datt á þverslánna og aftur fyrir endamörk. Tæpri mínútu síðar bjargaði þversláin Bolton enn á ný. Þá átti Palacios þversendingu inn í teiginn. Robinson reyndi að koma sendingunni aftur fyrir endamörk en tókst ekki betur til en svo að boltinn stefndi beint í mark Boltonmanna en Jaaskelainen náði að reka tánna í boltann og þaðan fór hann í þverslánna. Loksins virtust leikmenn Spurs hafa vaknað til lífsins og voru nú líklegri til að skora. Á 61. mínútu kom svo jöfnunarmarkið hjá Spurs. Bale átti góðan sprett inn í teiginn af vinstri kantinn og gaf á Defoe sem smellhitti boltann í netið af 12 metra færi. Á 65. mínútu átti Palacios gott skot af 20 metra færi sem fór rétt yfir markið og Kranjcar sem hafði komið inná sem varamaður átti bylmingsskot sem Finninn í marki Bolton rétt náði að verja. Nú voru það leikmenn Spurs sem réðu lögum og lofum á vellinum. Á 70. mínútu dró svo til tíðinda. Ricketts varnarmaður Bolton handlék knöttinn augljóslega innan vítateigs Bolton og dómarinn dæmdi réttilega vítaspyrnu. Eftir að hafa klúðrað tveimur vítaspyrnum í röð á leiktíðinni vék Defoe sem vítaskytta liðsins og Huddlestone tók því vítið að þessu sinni. En Svo virðist sem leikmönnum Spurs sé ekki ætlað að skora úr vítum því þriðja vítið í röð á leiktíðinni fór forgörðum að þessu sinni. Jaaskelainen varði vítið frá Huddlestone. Það sem eftir lifði leiks voru það Tottenham sem spurðu spurninganna við mark Boltonmanna. Hættulegasta færið átti Defoe á þriðju mínútu uppbótartímans en knötturinn fór hárfínt framhjá markinu. Lokatölur leiksins því 1-1 í kaflaskiptum leik. Liðin mætast aftur á WHL þann 24 febrúar.

 

Liðið: Gomes, Corluka, Dawson, King, Bale, Bentley, Huddlestone, Palacios, Modric (Kranjcar 62), Defoe, Crouch

 

EKG