Tottenham heimsótti Wolves á heimavöll þeirra, Molineux völlinn á miðvikudagskvöld, en leikin var heil umferð í deildinni í miðri viku að þessu sinni. Tottenham átti harma að hefna eftir fyrri leik liðanna á White Hart Lane en þar fóru leikmenn Wolves með sigur af hólmi. Mikilvægt var fyrir Tottenham að hirða öll stigin úr þessari viðureign enda orðin hörð baráttan um evrópusætin í deildinni. Wolves menn eru hins vegar í hörkubaráttu á hinum enda deildarinnar og sigur hefði komið þeim upp úr fallsæti. Það fór svo að úlfarnir höfðu aftur betur í slag liðanna og sigruðu með sömu markatölu og í fyrri leiknum, 1-0. Eiður Smári byrjaði inná í sínum fyrsta leik og lék 63 mínútur.
Harry gerði 5 breytingar á liðinu sem náði jafntefli gegn Aston Villa um helgina og komu nokkrar þær á óvart. Bæði Eiður Smári og Kaboul, sem gengu til liðsins í janúar, byrjuðu inná. Liðið var því þannig skipað að Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Kaboul, Dawson, Bassong og Bale. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Jenas og Kranjcar og frammi byrjuðu þeir Eiður Smári og Defoe. Bekkurinn var sterkur og á honum sátu þeir Alnwick, Corluka, K.Walker, Palacios, Modric, Crouch og Pavlyuchenko.
Strax á annarri mínútu átti Bentley skot að marki en Hahnemann varði vel í markinu. Á hinum enda vallarins var nokkur hætta í vítateig Tottenham þegar Gomes kýldi boltann eftir hornspyrnu frá Jarvis en boltinn fór ekki lengra en til Jones sem skaut að marki en Dawson komst í veg fyrir skotið. Á 9.mínútu komst Jenas í stórgott færi eftir gott samspil við Defoe og Eið Smára. Jenas gaf boltann á Eið Smára sem sendi hann á Defoe. Defoe vippaði honum svo innfyrir á Jenas sem komst framhjá Hahnemann en náði ekki að koma boltanum í netið. Eftir um 20 mínútna leik komst Kranjcar nálægt því að skora fyrsta markið. Kaboul gaf góða sendingu á Eið Smára sem sendi boltann á Defoe. Defoe gaf boltann inn fyrir á Kranjcar sem var kominn einn á móti Hahnemann í markinu, en Hahnemann varði glæsilega. Á 27.mínútu kom þó að fyrsta markinu og það voru úlfarnir sem skoruðu það. Jones gaf boltann á Jarvis á vinstri kantinum og hann gaf boltann aftur stuttu síðar inn í teiginn, en þar kom Jones á sprettinum og átti ekki í vandræðum með að koma boltanum framhjá Gomes í markinu. Staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Tveimur mínútum síðar vildu Woves menn fá vítaspyrnu þegar Dawson virtist fella Doyle inni í vítateig Spurs. Dómarinn dæmdi þó ekkert og leikurinn hélt áfram. Á 33. mínútu varði Gomes gott skot frá Jarvis og á hinum enda vallarins fékk Kranjcar ágætis færi en skot hans var laust og hitti beint á Hahnemann. Mörkin urðu ekki fleiri í fyrri hálfleik og staðan því 1-0, Wolves í vil.
Harry gerði strax eina skiptingu í hálfleik, Jenas fór af velli og Palacios kom inná í hans stað. Kranjcar komst í ágætt færi strax á upphafsmínútunum en skot hans fór rétt framhjá. Huddlestone og Kranjcar fengu svo ágæt færi báðir tveir en tókst ekki að skapa næga hættu fyrir Wolves menn. Á 63. mínútu gerði Harry sína aðra skiptingu í leiknum, Crouch kom inná og fór Eiður Smári af velli í hans stað. En ekki breytti sú skiptingu miklu þar sem lítið var um hættuleg færi. Loka skiptingu sína gerði Harry á 72.mínútu þegar Modric kom inná í stað Kranjcar. Dauðafærin voru þó ekki sýnileg það sem eftir lifði leiks, varnarmenn Wolves vörðust vel og sóknarleikur Tottenham máttlaus. Bentley tókst þó að skora þegar um 5 mínútur voru til leiksloka en línuvörðurinn flaggaði rangstöðu og markið því ekki gilt. Leikmenn Wolves höfðu því betur gegn Tottenham, í annað sinn á þessu tímabili og hirtu öll stigin.
Lið Spurs: Gomes, Kaboul, Dawson, Bassong, Bale, Bentley, Huddlestone, Jenas (Palacios), Kranjcar (Modric), Eiður Smári (Crouch), Defoe. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Corluka, K.Walker, Pavlyuchenko.






