Tottenham tók á móti Aston Villa á White Hart Lane í leik helgarinnar. Liðin þurftu bæði á stigum að halda enda í hörkubaráttu um fjórða og síðasta sæti deildarinnar sem gefur þátttökurétt í Meistaradeildinni. Eiður Smári var í fyrsta skipti í leikmannahóp Tottenham eftir félagaskipti hans í janúarglugganum, en hann vermdi varamannabekkinn í þetta skiptið. Hvorugu liðinu tókst að skora í leiknum og lauk honum því með markalausu jafntefli. Liðin skiptu því stigunum bróðurlega á milli sín.
Harry gerði 3 breytingar á liðinu sem sigraði Leeds í miðri viku í FA bikarkeppninni. King, Palacios og Modric komu inn í liðið á nýjan leik í stað Bassong, Jenas og Kranjcar. Kaboul og Eiður Smári tóku sæti á bekknum, en þeir gengu til liðs við félagið í janúarglugganum. Kyle Walker, sem kallaður var úr láni frá Sheffield United, var sömuleiðis á bekknum. Liðinu var því þannig stillt upp að Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, King og Bale. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Palacios og Modric og frammi hófu leikinn þeir Crouch og Defoe. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Bassong, Kaboul, Walker, Jenas, Kranjcar og Guðjohnsen.
Leikmenn Tottenham virtust byrja leikinn mun betur en Villa menn og fengu sitt fyrsta hættulega færi á 4. mínútu leiksins. Crouch skallaði boltann fyrir fætur Modric en hann náði ekki nógu kröftugu skoti að marki og hafnaði boltinn því í fangi Friedel í markinu. Á 10.mínútu átti Bentley skot að marki frá löngu færi en boltinn fór rétt framhjá markinu. Fjórum mínútum síðar varði Friedel vel þegar King náði að skalla boltann að marki eftir að hafa verið einn og óvaldaður inni í teig þegar liðið tók hornspyrnu. Þegar tæpar tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum munaði litlu að Crouch næði að skora en Friedel var vel vakandi í markinu og varði skot hans. Á 24. mínútu fékk Huddlestone gott færi þegar hann þrumaði boltanum að marki en Friedel rétt náði að verja skot hans og varnarmenn Villa hreinsuðu frá. Villa menn fengu þó eitt og eitt færi þó að lítið markvert hafi gerst í þeirra sóknarleik. Gomes varði vel þegar um 25 mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Milner þrumaði boltanum á marki af löngu færi og Gomes stoppaði það skot. Hann náði þó ekki að halda boltanum og skaust hann út til Agbonlahor sem skaut að marki en Gomes var fljótur á fætur og varði það skot einnig. En hættulegasta færi fyrri hálfleiksins fékk svo Defoe þegar tæpar 5 mínútur voru til loka fyrri hálfleiks. Liðið fékk hornspyrnu sem Bentley tók. Hann spyrnti boltanum inn í teiginn og Crouch skallaði hann áfram á King sem skaut góðu skoti að marki. Friedel varði glæsilega en boltinn barst út í markteiginn á Defoe sem var kominn í upplagt færi. En honum tókst þó ekki að koma boltanum yfir marklínu Villa manna heldur náði að skjóta boltanum rétt yfir markið. Ekkert mark var skoraði í fyrri hálfleik og staðan því jöfn, 0-0 í hálfleik.
Leikmenn Villa reyndu að sækja örlítið meira í seinni hálfleik en komust ekki mikið áleiðis enda leikmenn Tottenham mun ákveðnari í sóknarleik sínum. Þegar tæplega klukkustund var liðin af leiknum átti Huddlestone annað þrumuskot að marki og enn á ný varði Friedel vel. Þegar rúmlega stundarfjórðungur var til leiksloka sluppu Villa menn með skrekkinn þegar Dunne náði að koma í veg fyrir að skot Bentley færi á rammann, en Friedel var þá illa staðsettur í markinu og hefði ekki náð til boltans. Heppnin var ekki með Tottenham og endurspeglaðist það enn og aftur þegar um 10 mínútur voru til leiksloka. Crouch skallaði boltann á markið en boltinn fór í leikmann Villa og framhjá markinu. Lokamínútur leiksins voru ansi fjörugar en þrátt fyrir góðar tilraunir hjá Crouch, Defoe og Corluka þá náðu Villa menn að halda hreinu með Friedel í broddi fylkingar. Leikmenn Tottenham vildu svo fá vítaspyrnu þegar 3 mínútur voru til leiksloka þegar Petrov virtist ýta á Defoe innan teigs en dómarinn var ekki á sama máli. En þar sem hvorugu liðinu tókst að skora mark í leiknum, lauk honum með markalausu jafntefli og hvort lið um sig fékk 1 stig í baráttunni um meistaradeildarsætið.
Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, King, Bale, Bentley, Huddlestone, Palacios, Modric, Crouch, Defoe. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Bassong, Kaboul, K.Walker, Jenas, Kranjcar, Guðjohnsen.
SAJ






