Tottenham tók á móti Hearts í síðari viðureign liðanna í undankeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudagskvöld. Harry stillti upp afar breyttu liði og gaf hann ungum leikmönnum tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Meðal byrjunarliðsmanna voru Townsend, Fredericks, Livermore, Carroll og Kane. Leikmenn Tottenham byrjuðu leikinn betur en besta færið kom eftir ca hálftíma leik þegar Kane fékk dæmda vítaspyrnu á Hearts menn. Hann kaus sjálfur að taka spyrnuna en markvörður Hearts varði hana. Í síðari hálfleik komu Hearts menn sterkari til leiks, en hvorugu liðinu tókst þó að koma boltanum í netið og skildu þau því jöfn 0-0.
Lið Spurs (4-4-2): Cudicini; Corluka, Dawson (Kaboul, 46), Bassong, Townsend; Fredericks (Kranjcar, 61), Huddlestone, Livermore (Nicholson, 77), Carroll; Pavlyuchenko, Kane. Ónotaðir varamenn: Friedel, Assou-Ekotto, Van der Vaart, Defoe






