Tottenham vann sinn fyrsta sigur í Evrópudeildinni þetta tímabilið í kvöld. Liðið lék gegn Shamrock Rovers frá Írlandi og var spilað á WHL heimavelli Tottenham. Leikar enduðu 3-1 eftir að staðan í hálfleik hefði verið 0-0. Mörk Tottenham skoruðu Pavlyuchenko , Defoe og Dos Santos.
Tottenham stillti upp mikið breyttu liði sem sigraði lið Wigan um síðustu helgi – enda er Evrópudeildin ætluð fyrir leikmenn sem spila minna í deildinni.
Liðið lék mjög vel í fyrri hálfleik og stjórnaði leiknum í raun frá A-Ö. Lið Shamrock komst lítið áleiðis. Það var með ólíkindum að staðan í hálfleik hefði verið 0-0 , þar sem Tottenham áttu tvö skot í þverslá, það var bjargað á línu ásamt því sem markvörður Shamrock varði oft á tíðum frábærlega.
Eftir einungis fimm mínútna leik í síðari hálfleik skoruði Shamrock Rovers og komst í 0-1. Aukaspyrna fyrir utan teig sem Cudicini varði, en leikmaður Shamrock náði frákastinu við vítateigslínu og skaut að marki , skot sem Cudicini var alltaf að fara að verja .. en við markteig potaði leikmaður Shamrock í boltann og breytti um stefnu hans sem gerði skotið óverjanlegt fyrir Cudicini.
10 mínútum síðar hófst svo flugeldasýning Tottenham , þegar liðið jafnaði 1-1. Dos Santos átti þá flotta fyrirgjöf frá vinstri sem rataði beint á kollinn á Pavlyuchenko sem stangaði hann í netið …. Aðeins tveimur mínútum síðar var Tottenham komið yfir 2-1. Andy Townsend átti þá flottan kross frá vinstri sem Defoe skallaði í netið af markteig .. ekki oft sem Defoe skorar með skalla. Dos Santos kláraði svo leikinn þremur mínútum síðar þegar hann kom Tottenham í 3-1. Defoe átti þá ca. 50 m sprett upp völlinn, gaf góðan bolta á Dos Santos við vítateiginn og Dos Santos kláraði nokkuð vel.
Öruggur sigur í höfn og gaman að sjá ungu strákana spila. Vinstri kanturinn í leiknum var mjög ógnandi allan leikinn með þá Rose , Dos Santos og Townsend. Lennon var að koma tilbaka úr meiðslum og sýndi ekki mikið þennan hálfleik sem hann spilaði. Annars fannst mér bara liðið standa sig mjög vel og áttu sigurinn fyllilega skilið og hefði hann alveg mátt vera stærri miðað við gang leiksins og færin sem Tottenham fékk.
Þess má til gamans geta að Tottenham átti 17 skot á rammann í kvöld á móti þremur frá Shamrock, og liðið átti 7 skot framhjá á móti 4 hjá Shamrock. Auk þess fékk lið Tottenham 9 hornspyrnur en lið Shamrock fékk enga.
Lið Tottenham í leiknum :
Cudicini – Walker – Basson – Corluka – Rose ( Kane 80 ) – Lennon ( Townsend 46 ) – Carroll – Livermore – Dos Santos – Defoe ( Falque 73 ) – Pavlyuchenko
Ónotaðir varamenn : Gomes – Bale , Kaboul – Modric
BÓ






