Tottenham – Arsenal – upphitun

0
681

Það styttist óðum í fyrsta "Derby" leikinn á tímabilinu.  Tottenham – Arsenal á sunnudaginn kl. 15.00 að íslenskum tíma.   Langaði að henda inn hérna smá upphitun fyrir þennan stórleik.

Leikdagur :  Sunnudagurinn 2. október 2011 kl. 15.00

Leikstaður :  whl_.jpgWhite Hart Lane

Það er alltaf fjör þegar Tottenham og Arsenal mætast , enda nágrannaslagur af bestu gerð.   Frá því að úrvalsdeildin byrjaði hafa liðin mæst 18. sinnum á WHL og hefur Tottenham unnið 4 leiki ,  Arsenal 4 leiki og jafnteflin eru 10 talsins.   Á síðasta tímabili fóru leikar 3-3 í þrælskemmtilegum leik.  Við sigruðum Arsenal 2-1 leiktíðina 2009-2010.  Tottenham tapaði síðast heimaleik gegn Arsenal í deildinni tímabilið 2007-2008 , þegar Tottenham tapaði 1-3 þar sem Adebayor nokkur skoraði 2 mörk !!  Honum tókst einmitt að skora 8 sinnum gegn Tottenham í 9 leikjum með Arsenal á sínum tíma.  Þannig að það er hið besta mál að hann sé í okkar röðum núna.

Árangur Tottenham og Arsenal í deildinni á þessu tímabili hefur verið upp og ofan ,  bæði lið byrjuðu mótið mjög illa.  Arsenal t.d. töpuðu fyrir Manchester United á Old Trafford 8-2 sem eru ótrúleg úrslit.  Einnig hefur Arsenal tapað leikjum gegn Liverpool og Blackburn.  Lið Arsenal varð fyrir miklu áfalli fyrir mót þegar þeirra besti maður í mörg ár , Fabregas var seldur til Barcelona,  einnig misstu þeir Nasri og Clichy til Manchester City.   Á móti kom að Wenger keypti nokkra leikmenn undir lok félagsskiptagluggans. 

Tottenham byrjaði mótið á slæmu nótunum og töpuðu fyrir báðum Manchester liðunum samtals 1-8 !!   en síðan þá hefur liðið verið að bæta sig mikið og unnið síðustu þrjá leikina í deildinni þ.a.m. Liverpool heima 4-0.  Nýju leikmennirnir í Tottenham , þeir Scott Parker og E.Adebayor hafa aldeilis slegið í gegn og passa vel inn í liðið.

.

.

Fyrir þennan leik er staða liðanna í deildinni á þennan veg.

Sæti                   Spilaðir leikir   Sigrar     Jafntefli   Tapleikir   MS – MF    +/-     Stig

6. Tottenham               5                3              0             2           9  –   9       0         9

13. Arsenal                  6                2              1             3           9  –   14    -5         7

.

.

Lykilleikmenn Tottenham

modric.pngLuca Modric.   Eftir allt ruglið sem fylgdi því að Chelsea vildu kaupa hann í sumar, hefur Modric verið að koma tilbaka og verið að sýna hvað hann getur.  Skoraði gull af marki á móti Liverpool og hefur sýnt stíganda í leik sínum frá byrjun móts.  Vonum bara að þetta Chelsea rugl sé að baki og við getum farið að njóta getu Modric á vellinum.  Þegar hann er með hausinn í lagi er hann klárlega einn af betri miðjumönnum / leikstjórnendum í heiminum í dag.

bale.pngGareth Bale.   Hefur verið nokkuð góður það sem af er tímabilinu og skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu í sigrinum gegn Wigan um síðustu helgi.  Hefur ekki verið að nýta færin sín vel og þarf að laga það.  Hefur fiskað tvo leikmenn útaf í vetur , þar sem andstæðingarnir bregða oft á það ráð að sparka Bale niður þegar hann er að nýta hraða sinn og stinga þá af.  Er klárlega orðinn einn af lykilleikmönnum í þessu Tottenham liði og flest lið hræðast að mæta honum.  Vona bara að hann eigi eftir að gera lítið úr Sagna bakverði Arsenal í leiknum á sunnudag.

scott_parker.jpgScott Parker.   Margir voru með efasemdir um þennan leikmann þegar Tottenham keypti hann í sumar frá West Ham.  En hann hefur sýnt það sem af er móti að Tottenham var að fá klassa leikmann í sínar raðir.  Er yfirvegaður og  baráttuglaður á miðjunni og er með gott auga fyrir spili.  Parker á alla möguleika á að verða lykilmaður í þessu Tottenham liði,   Parker og Modric áttu t.d. algerlega miðjuna gegn Liverpool um daginn og virðast þeir ná mjög vel saman á miðjunni.

vdv_.jpgRafael Van Der Vaart.  Átti stórkostlegt tímabil í fyrra og var að mörgum talinn kaup ársins í fyrra í ensku úrvalsdeildinni.  Meiðsli hafa svoldið verið að skemma fyrir honum, en hann er frábær knattspyrnumaður.  Skoraði t.d. 3 af 6 mörkum Tottenham gegn Arsenal í deildinni í fyrra, vonum því að hann haldi áfram að skora gegn Arsenal.

.

.

Svo er bara að vona að Ledley King verði leikfær … það munar um minna þegar hann er heill og getur spilað.  Sérstaklega þegar Dawson er meiddur.

.

bale___vdv_a_fagna_vs_arsenal.jpgSíðast þegar þessi lið léku í deildinni var spilað á Emirates vellinum , heimavelli Arsenal og þar fór Tottenham með sigur af hólmi – unnu Arsenal í fyrsta skipti á útivelli í úrvalsdeildinni.  Lokatölur þá voru 2-3 eftir að Arsenal komst í 2-0.  Bale , Van Der Vaart og Kaboul skoruðu mörk Tottenham í leiknum sem var bráðfjörugur eins og venjan er þegar þessi lið mætast.

.

.

.

Wenger hefur nokkrum sinnum tapað sér á hliðarlínunni hjá Arsenal og vonar maður að hann eigi eftir að líta svona út á meðan leik stendur á sunnudaginn og eftir leikinn …   🙂

wenger_loosing_it.jpg

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

Skemmtilegar staðreyndir :

  • Arsenal hefur aðeins unnið einn af síðustu 6 deildarleikjum gegn Tottenham, og engann af síðustu þremur
  • 8 af síðustu 11 deildarleikjum milli liðanna á WHL hafa endað með jafntefli
  • Þetta verður 167 leikurinn á milli liðanna.  Arsenal hefur unnið 67,  Tottenham hefur unnið 52 og 45 jafntefli
  • Arsenal hefur ekki unnið útileik í síðustu 7 útileikjum
  • Arsenal hefur ekki unnið leik með Mike Dean sem dómara í síðustu 8 leikjum …
  • Tottenham er ósigrað á heimavelli í síðustu 15 "derby" leikjum ( Arsenal, Chelsea , West Ham , Fulham ) … eða síðan Tottenham tapaði fyrir Arsenal 1-3 í september 2007.

.

Líklegt byrjunarlið hjá Tottenham á sunnudaginn :

tottenham_lineup.png

 .

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

Mín spá :   3-1 heimasigur  ( Parker , Bale & Adebayor )

.

.

Birgir