Tottenham hélt sigurgöngu sinni áfram á laugardaginn þegar liðið heimsótti lið WBA heim á The Hawthorns. Lokatölur 1-3 Tottenham í vil sem lentu 1-0 undir í leiknum. Mörk Tottenham skoruðu Adebayor 2 og Defoe. Tottenham komst upp í þriðja sæti deildarinnar með þessum sigri og liðið á rosalegri siglingu í deildinni.
Leikurinn á laugardaginn byrjaði ekki gæfulega en eftir einungis 10 mínútna leik skoraði WBA með góðu skallamarki eftir frábæra fyrirgjöf frá hægri. Það voru smá byrjunar erfiðleikar hjá Tottenham en í þennan leik vantaði bæði Modric (veikur) og Vdv (meiddur) – og vantaði upp á sóknarleikinn til að byrja með.
Liðið vann sig inn í leikinn smátt og smátt og það var svo á 25. mínútu sem Tottenham jafnaði. Lennon átti þá klassa sprett inn í teiginn og var brotið á honum og réttilega dæmd vítaspyrna. Adebayor fór á punktinn en Foster í marki WBA varði slaka spyrnu hans en frákastið fór til Adebayor sem náði að troða boltanum í netið , 1-1. Bæði lið spiluðu vel það sem eftir var fyrri hálfleiks en lið WBA virtist sem líklegra til að skora. Staðan í hálfleik 1-1.
Lið Tottenham kom mjög ákveðið til leiks í seinni hálfleiks og var allt annað að sjá til liðsins miðað við fyrri hálfleikinn. Liðið fékk nokkur ágætis færi á meðan WBA voru í vandræðum með spil sitt. Sandro sem kom inn í liðið í stað Modric var vaxandi allan leikinn og átti mjög góðan leik í seinni hálfleik.
En Tottenham þurfti að bíða fram á 81. mínútu eftir næsta marki … Adebayor átti þá flotta hælsendingu á Defoe við miðlínu vallarins og Defoe tók á rás upp völlinn með varnarmenn fyrir framan sig. Þegar að vítateig var komið lét Defoe svo bara vaða og boltinn steinlá í horninu , óverandi fyrir Foster í markinu. Flott mark hjá Defoe sem sýndi þarna hvað í honum býr. Tottenham hélt boltanum vel eftir markið og fengu 2 úrvalsfæri til að bæta við þriðja markinu , en það var svo á 93. mínútu sem Kaboul hreinsaði frá marki, boltinn fór beint til Bale sem lék að vítateignum og renndi boltanum svo til vinstri á Adebayor sem skoraði framhjá Foster. 1-3 urðu lokatölur og nokkuð sanngjörn úrslit þrátt fyrir erfiða byrjun og nokkuð slappan fyrri hálfleik. En Tottenham fengu miklu fleiri og betri færi í leiknum.
Lið Tottenham í leiknum :
Friedel – Walker – King – Kaboul – Ekotto – Lennon – Sandro(Livermore 80) – Parker – Bale – Defoe – Adebayor
Ónotaðir varamenn : Cudicini , Gallas , Bassong , Pienaar , Fredericks , Kane
.
.
BÓ






