Heppnissigur á Watford í FA CUP

0
663

Tottenham lék gegn Watford á útivelli í FA CUP síðasta föstudagskvöld og bar sigur úr bítum 0-1 þar sem Tottenham átti akkúrat ekkert skilið úr leiknum þar sem lið Watford sýndi sínar bestu hliðar á meðan lið Tottenham virkaði andlaust.  Mark Tottenham skoraði Van Der Vaart.  Tottenham er því komið áfram í næstu umferð – 16 liða úrslit þar sem liðið mætir Stevenage á útivelli.

vdv_watford.jpgHarry Redknapp hvíldi nokkra leikmenn en stillti samt upp nokkuð sterku liði gegn Watford.  Þrátt fyrir að vera með boltann meira í leiknum,  fékk Watford færin og áttu miklu fleiri skot á mark en Tottenham.  Eina mark leiksins kom á 42. mínútu þegar Van Der Vaart átti skot fyrir utan teig sem markvörður Watford hefði átt að taka,  en inn fór boltinn.   Lítið annað að segja um þennan leik.

Lið Tottenham

Cudicini – Walker – Dawson – Kaboul – Rose – Livermore – Modric (Lennon 46 ) – Parker – VdV – Defoe (Pienaar 80) – Adebayor (Pavlyuchenko 90 )

Ónotaðir varamenn :

Friedel – Bassong – Ekotto – Kranjcar

Tölfræði úr leiknum.

Með boltann

Watford 45 %     Tottenham 55%

Skot á mark

Watford 12     Tottenham 4

Skot framhjá

Watford 13     Tottenham 2

Hornspyrnur

Watford 4    Tottenham 1

.

.