Á miðvikudaginn 5 maí klukkan 19:00 mun fara fram leikur Manchester City og Tottenham Hotspur. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið þar sem sigur myndi tryggja Tottenham fjórða sætið og möguleika á 3. sætinu fyrir lokaumferðina. Sigri Manchester myndi það tryggja þeim tveggja stiga forustu um 4 sætið fyrir lokaumferðina (sem tryggir þáttöku í undankeppni meistaradeildarinnar á næsta tímabili). Það má því búast við hörku leik þar sem bæði lið munu leggja allt undir.
Tottenham klúbburinn á Íslandi hvetur alla stuðningsmenn Tottenham til að fjölmenna, í fatnaði merktum Tottenham, á Ölver og hvetja sitt lið til dáða í leiknum gegn Manchester City.
Áfram Tottenham!






