Tottenham mætti Portsmouth í undanúrslitum FA bikarsins á Wembley á sunnudaginn sl. Gengi liðanna í vetur hefur verið gjörólíkt, Tottenham hefur barist um meistaradeildarsæti allt tímabilið og á enn möguleika á því. Á meðan hafa Portsmouth menn mátt berjast á botni deildarinnar auk þess sem af liðinu voru dregin stig vegna greiðslustöðvunar og fengu þeir fregnir af því degi fyrir leikinn á Wembley að liðið væri endanlega fallið niður um deild. Það voru því flestir sem bjuggust við sigri Tottenham manna þrátt fyrir mikil meiðsli í leikmannahópnum en annað kom á daginn. Hvorugu liðinu tókst að skora í venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja leikinn. Í framlengingunni tókst Portsmouth mönnum að skora tvívegis með mörkum frá Piquionne og Boateng en mark sem Tottenham skoraði var dæmt af. Portsmouth menn eru því komnir í úrslitaleik FA bikarsins annað árið í röð og gerðu þar með úti um bikardrauma Tottenham.
Harry Redknapp gerði 5 breytingar á liðinu frá tapleiknum gegn Sunderland enda nokkrir leikmenn komnir tilbaka eftir fjarveru vegna meiðsla. Liðið var þannig skipað að Gomes stóð á milli stanganna sem fyrr og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Bassong og Bale. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Palacios og Modric og framherjapar dagsins var skipað þeim Crouch og Defoe. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Ekotto, Livermore, Kranjcar, Rose, Pavlyuchenko og Guðjohnsen.
Leikurinn fór rólega af stað en leikmenn Tottenham voru heldur sprækari á fyrstu 10 mínútum leiksins og kom Defoe sér í ágætis færi í tvígang en náði ekki að nýta þau. Næstu 15 mínútur liðu án þess að hvorugu liðinu tækist að skapa sér dauðafæri þrátt fyrir að nokkuð væri um hálffæri. Þegar um 25 mínútur voru liðnar af leiknum átti Modric gott skot að marki eftir innkast frá Corluka en boltinn fór rétt yfir markið. Á hinum enda vallarins fengu Portsmouth menn aukaspyrnu sem Boateng tók en skot hans fór framhjá markinu. Og þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum þurfti James að hafa sig allan við þegar Crouch skallaði að markinu en James náði að verja boltann. Á 36.mínútu fékk Piquionne besta færi fyrri hálfleiksins þegar hann komst einn á móti markverði eftir góða sendingu frá Yebda en Gomes varði vel. Á hinum enda vallarins varði James vel þrumuskot frá Huddlestone ásamt því að varnarmenn Portsmouth unnu vinnu sína vel á lokamínútum fyrri hálfleiks er Tottenham menn blésu til stórsóknar. Staðan í hálfleik var því 0-0.
Síðari hálfleikur var mun meira spennandi frá fyrstu mínútu heldur en sá fyrri. Eftir eingöngu tveggja mínútna leik fékk Defoe mjög gott færi eftir langa sendingu frá Crouch en Rocha, fyrrum leikmaður Tottenham, náði að kasta sér fyrir skotið og bjarga þar með Portsmouth mönnum. Á hinum enda vallarins kom Boateng sér í ágætis færi en skot hans fór þó vel yfir markið. Eftir rúmlega 55 mínútna leik átti Piquionne skalla að marki sem Gomes greip af öryggi og á hinum enda vallarins hafnaði boltinn sömuleiðis í höndunum á James eftir skot frá Defoe. Á 59.mínútu gerði Harry sína fyrstu skiptingu. Defoe fór af velli og Pavlyuchenko kom inná í hans stað. Á 61. mínútu vildu leikmenn Tottenham fá vítaspyrnu þar sem þeir vildu meina að fyrirgjöf Bale hefði hafnað í höndinni á Finnan en dómarinn var ekki á sama máli og leikurinn hélt áfram. Stuttu síðar fékk Crouch svo tvö upplögð færi en tókst ekki að koma boltanum í netið. Eftir um 70 mínútna leik fóru Portsmouth menn að pressa meira á leikmenn Tottenham en náðu þó ekki að valda miklu usla fyrir framan markið. Á 76.mínútu skallaði Crouch boltann í þverslánna eftir góða fyrirgjöf frá Bale á vinstri vængnum. Á 79.mínútu var komið að skiptingu númer tvö hjá Harry, Bentley fór af velli og Kranjcar kom inná í hans stað. Leikmenn Tottenham pressuðu á mark Portsmouth manna og átti Crouch nokkuð hættulegt færi í uppbótartíma en tókst ekki að nýta það og lauk leiknum því með markalausu jafntefli. Framlenging var því nauðsynleg til að knýja fram sigurvegara úr viðureign liðanna.
Fyrstu mínúturnar í framlengingunni voru tíðindalitlar, bæði lið reyndu að skapa sér marktækifæri en náðu ekki að koma boltanum í netið. Á 98.mínútu komst Pavlyuchenko í gott færi en skot hans fór yfir markið. Mínútu síðar leit fyrsta mark leiksins dagsins ljós. Wilson tók aukaspyrnu og Boateng skallaði hana áfram fyrir markið. Þar varð Dawson fyrir því óláni að renna til á hinu skelfilega grasi á Wembley þegar hann ætlaði sér að hreinsa boltann frá markinu. Piquionne nýtti sér þetta óhapp hjá Dawson og renndi boltanum framhjá Gomes í markinu. Staðan orðin 0-1 Portsmouth í vil. Leikmenn Tottenham voru ákveðnir að jafna leikinn á ný og átti Crouch stuttu síðar skot að marki sem hafnaði í stönginni. Á 102.mínútu leiksins náðu leikmenn Tottenham loksins að koma boltanum í net Portsmouth manna. Bale gerði vel á vinstri kantinum og gaf fyrir markið. Kranjcar og James reyndu báðir að ná til boltans en tókst það hvorugum og barst hann áfram til Crouch sem kom honum í netið. Línuvörðurinn vildi þó meina það að Kranjcar hefði verið brotlegur gagnvart James inni í teig og dæmdi því markið af þrátt fyrir hörð mótmæli leikmanna Tottenham. Stuttu síðar gerði Harry sína síðustu skiptingu í leiknum. Eiður Smári Guðjohnsen kom inná fyrir Huddlestone. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hluta framlengingarinnar.
Fljótlega í upphafi síðari hluta framlengingarinnar var Bale farinn að hrella varnarmenn Portsmouth á ný og tókst að koma boltanum fyrir markið á Pavlyuchenko en skot hans á markið hafnaði beint í fanginu á James. Þegar um 10 mínútur voru eftir af framlengingunni varð Kranjcar fyrir meiðslum eftir tæklingu frá Brown en hann spilaði þó áfram út leikinn. Á 115.mínútu náði Bale að koma boltanum á Corluka fyrir framan markið en James var vel vakandi og náði til boltans áður en Corluka gat miðað að markinu. Mínútu síðar varð Palacios fyrir því óláni að brjóta á Dindane innan vítateigs Tottenham manna og dómarinn dæmdi vítaspyrnu og gaf Palacios gult spjald í leiðinni. Þar með þýddi það að Palacios fengi 2 leikja bann þar sem þetta var 10. spjaldið hans á leiktíðinni. Boateng steig á vítapunktinn og skoraði af öryggi framhjá Gomes í markinu. Staðan orðin 2-0 fyrir Portsmouth og mörkin urðu ekki fleiri í þessum leik. Portsmouth menn eru því komnir í úrslitaleikinn í FA bikarnum þar sem þeir mæta Chelsea í vor. Tottenham menn eru því fallnir úr leik í FA bikarnum og verða því að einbeita sér að deildinni það sem eftir lifir tímabilsins.
Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Bale, Bentley (Kranjcar), Huddlestone (Guðjohnsen), Palacios, Modric, Crouch, Defoe (Pavlyuchenko). Ónotaðir varamenn: Alnwick, Ekotto, Livermore, Rose.






