Á miðvikudagskvöldið fór fram hinn stóri nágrannaslagur í Norður London þegar Tottenham tók á móti Arsenal á White Hart Lane. Leikurinn átti að fara fram á laugardaginn en var frestað vegna þátttöku Tottenham í FA bikarnum. Arsenal menn voru enn með í baráttunni um titilinn fyrir leikinn og Tottenham að berjast um fjórða sætið svo að mikilvægt var fyrir bæði lið að ná öllum stigunum úr þessari umferð. Arsenal menn höfðu tölfræðina með sér því undanfarin ár hafa þeir haft tak á Tottenham og hefur síðarnefnda liðið ekki farið með sigur af hólmi í deildinni í viðureign þessara lið í 11 ár, eða síðan 1999. Það varð þó breyting á því í þetta skiptið því Tottenham náði loksins að leggja nágranna sína að velli. Lokatölur leiksins voru 2-1 og voru það Danny Rose og Gareth Bale sem skoruðu mörk Tottenham. Tottenham er því enn í baráttunni um 4.sæti deildarinnar en titilvonir Arsenal fóru nánast út um þúfur.
Harry gerði fimm breytingar á liðinu frá tapleiknum gegn Portsmouth á Wembley og var einstaklega ánægjulegt að sjá Ledley King snúa aftur eftir langa fjarveru. Liðið var þannig skipað að Gomes stóð í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Kaboul, Dawson, King og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Rose, Huddlestone, Modric og Bale og frammi spiluðu þeir Defoe og Pavlyuchenko. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Bassong, K.Walker, Bentley, Livermore, Crouch og Guðjohnsen.
Strax á annari mínútu leiksins skapaðist hætta fyrir framan mark Tottenham eftir hornspyrnu sem Nasri tók. Boltinn barst inn í teiginn og hafnaði í lærinu á Campbell og stefndi í áttina að markinu. Boltinn fór framhjá Gomes en það var lán fyrir Tottenham að Ekotto var við stöngina í hornspyrnunni því hann bjargaði á línu og staðan því enn jöfn 0-0. Mikil stemming var á vellinum og greinilegt að leikmenn beggja liða ætluðu ekkert að gefa eftir í þessum leik. En á 9. mínútu dró til tíðinda. Bale, Rose og Kaboul áttu gott samspil áður en boltinn barst til Pavlyuchenko sem skaut að marki en Vermaelen náði að komast í veg fyrir skotið og boltinn fór aftur fyrir endamörk. Tottenham fékk því hornspyrnu. Modric tók spyrnuna og gaf inn í teiginn. Almunia stökk manna hæstur og kýldi boltann vel út fyrir vítateiginn. Þar var hins vegar Danny Rose staðsettur, þessi 19 ára piltur sem var að byrja sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni. Og hann ákvað að þruma boltanum viðstöðulaust að markinu og smell hitti hann í netið framhjá Almunina. Frábært mark sem kemur án efa til greina sem mark tímabilsins og má segja að ólíklegt þykir að Rose muni nokkurn tímann gleyma þessum fyrsta leik sínum. Staðan því orðin 1-0 Tottenham í vil. Næsta korterið var frekar tíðindalítið. Bæði lið reyndu að skapa sér hættuleg marktækifæri en tókst ekki ætlunarverk sitt. Á 27. mínútu átti Bendtner ágætt skot að marki sem fór þó framhjá markinu. Arsenal menn voru mun meira með boltann en Tottenham liðið sýndi agaðan varnarleik og hélt þeim algjörlega í skefjum. Rosicky átti skot að marki sem King náði að verjast og Nasri tók aukaspyrnu af löngu færi og lét vaða beint á markið en boltinn fór yfir. Á 40.mínútu áttu Modric og Pavlyuchenko gott samspil og Modric náði að leika á varnarmenn Arsenal en Almunia var vel vakandi og náði til boltans áður en Modric náði að miða skot sitt almennilega á markið. Á hinum enda vallarins átti Clichy skot að marki sem hafnaði í hliðarnetinu. En mörkin urðu ekki fleiri í fyrri hálfleik og staðan því 1-0 í hálfleik, Tottenham í vil.
Harry gerði eina skiptingu í hálfleik. Danny Rose, markaskorarinn ungi, þurfti að fara af velli vegna meiðsla á hné og Bentley kom inná í hans stað. Og það voru einungis tæpar 2 mínútur liðnar af síðari hálfleik þegar Tottenham náði að auka forskot sitt. Huddlestone gaf sendingu fram á Defoe. Defoe náði að halda boltanum vel í baráttu við Campbell og gaf svo glæsilega sendingu inn í teiginn á Bale sem var einn og óvaldaður á móti Almunia og skoraði af öryggi. Fyrsta mark Bale í rúm 2 og hálft ár, en síðasta mark hans kom einmitt einnig á móti Arsenal. Staðan því orðin 2-0 fyrir heimamenn og stemmingin svakaleg á White Hart Lane. Leikmenn Arsenal voru ekki á því að gefast upp og reyndu hvað þeir gátu að skapa sér marktækifæri en leikmenn Tottenham vörðust vel, allir sem einn. Pavlyuchenko fékk svo sæmilegt færi á 55.mínútu en skot hans var varið. Tíu mínútum síðar munaði ekki miklu að Bendtner næði að skora en skot hans fór rétt framhjá markinu. Á 68.mínútu gerði Harry aðra skiptingu sína í leiknum. Defoe fór af velli og inná í hans stað kom Eiður Smári Guðjohnsen. Á sama tíma kom Van Persie inná fyrir Arsenal en hann hefur verið lengi fjarverandi vegna meiðsla. Mínútu síðar voru leikmenn Tottenham komnir í góða sókn og boltinn barst inn í teiginn til Eiðs Smára sem var vel staðsettur en hann hitti boltann illa og boltinn fór því vel framhjá markinu. En þá var komið að Gomes að sýna snilli sína og þagga niður í þeim sem mögulega hafa einhverjar efasemdir um ágæti hans sem markmanns. Diaby sendi boltann inn í teig á Van Persie sem var vel staðsettur fyrir framan markið. Hann tók boltann á bringuna og skaut svo að marki en Gomes náði að teygja sig í boltann og blaka honum glæsilega framhjá markinu. Stuttu síðar átti Rosicky þrumuskot af löngu færi í áttina að markinu en boltinn fór framhjá. Arsenal menn pressuðu stíft að marki Tottenham og á 84.mínútu fengu þeir aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan teig. Van Persie tók spyrnuna og kom boltanum snyrtilega framhjá varnarveggnum og stefndi hann í topphornið. En Gomes var í stuði og náði að blaka boltanum framhjá markinu. Nasri tók hornspyrnuna og gaf inn í teiginn. Campbell stökk manna hæst og skallaði að marki. Gomes náði þó á ótrúlegan hátt að verja boltann í þverslánna og þaðan komu varnarmenn Tottenham boltanum frá markinu. En á 85.mínútu var lítið sem Gomes gat gert annað en að hirða boltann úr netinu. Van Persie gaf góða sendingu á Walcott á hægri kantinum sem renndi boltanum fyrir markið. Þar var Bendtner réttur maður á réttum stað og renndi boltanum í netið. Staðan orðin 2-1 fyrir Tottenham og magnaðar lokamínútur framundan. Harry gerði síðustu skiptingu sína í leiknum á 88. mínútu þegar Pavlyuchenko fór af velli og Crouch kom inná í hans stað. Leikmenn Arsenal reyndu að jafna á lokamínútunum en tókst ekki ætlunarverk sitt og litlu munaði að Bentley næði að bæta við marki rétt áður en dómarinn flautaði til leiksloka. Tottenham fór því með sigur af hólmi í þessari viðureign eftir langa bið, 2-1 og hélt þar með lífi í baráttunni um fjórða sæti deildarinnar sem gefur þátttökurétt í umspili um meistaradeildarsæti á næstu leiktíð.
Lið Spurs: Gomes, Kaboul, Dawson, King, Ekotto, Rose (Bentley), Huddlestone, Modric, Bale, Defoe (Guðjohnsen), Pavlyuchenko (Crouch). Ónotaðir varamenn: Alnwick, Bassong, K. Walker, Livermore.
SAJ






