Góður sigur á toppliði Chelsea

0
630

Eftir góðan sigur á nágrönnunum í Norður London var komið að öðrum erfiðum heimaleik þegar nágrannar liðsins í Suður London, Chelsea, mættu í heimsókn. Leikmenn Tottenham mættu fullir sjálfstraust í leikinn eftir góðan sigur á Arsenal en Chelsea menn eiga í harðri baráttu við Manchester United um Englandsmeistaratitilinn og mega ekki við því að missa stig. Sömu sögu er þó að segja um Tottenham því liðið á enn góða möguleika á meistaradeildarsæti og því hvert stig mikilvægt. Leikmenn Tottenham héldu áfram að spila sömu góðu spilamennskuna og í leiknum gegn Arsenal og uppskáru góðan 2-1 sigur á toppliðinu. Mörk Tottenham skoruðu þeir Defoe og Bale en Lampard minnkaði muninn fyrir Chelsea.

 

Harry Redknapp gerði tvær breytingar á liði Tottenham frá leiknum gegn Arsenal. Ledley King gat ekki spilað annan leik svona stuttu eftir Arsenal leikinn og Rose átti við smávægileg meiðsli að stríða og því komu þeir Bassong og Bentley inn í liðið í stað þeirra. Liðið var því þannig skipað að Gomes stóð í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Kaboul, Dawson, Bassong og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Modric og Bale og framlínan var skipuð þeim Defoe og Pavlyuchenko. Á bekknum sátu þeir Alnwick, K.Walker, Livermore, Townsend, Rose, Guðjohnsen og Crouch.

 

Leikurinn fór nokkuð rólega af stað og eftir um fimm mínútna leik voru það Tottenham menn sem fengu fyrsta almennilega færi leiksins þegar Pavlyuchenko kom sér í skotstöðu eftir samspil við Defoe en skot hans fór yfir markið. Á 7.mínútu átti Malouda gott skot að marki eftir góða sókn Chelsea manna en Gomes var vel vakandi í markinu og varði skot hans. Leikmenn Spurs sóttu svo stíft næstu mínúturnar og fengu Bale, Defoe og Pavlyuchenko ágætis færi til að koma Tottenham yfir en það gekk þó ekki. En þegar tæplega stundarfjórðungur var liðinn af leiknum dró til tíðinda þegar fyrirgjöf frá Bale hafnaði í handlegg Terry inni í teig og dómarinn dæmdi vítaspyrnu. Þrátt fyrir misgóða nýtingu á vítaspyrnum á þessu tímabili steig Defoe á vítapunktinn og átti ekki í vandræðum með að koma boltanum framhjá Cech í markinu. Staðan orðin 1-0 og fagnaðarlæti stuðningsmanna Tottenham gífurleg en þeir klikkuðu ekki frekar en fyrri daginn í stuðningi sínum við liðið. Á næstu mínútum fengu Gomes og Cech báðir að vinna fyrir launum sínum er Drogba og Pavlyuchenko reyndu að koma boltanum í netið á sitthvorum vallarhelmingnum en markverðirnir sáu til þess að þeim tókst ekki ætlunarverk sitt. Eftir tæpan hálftíma leik fékk Bentley fínt færi eftir gott hlaup frá Modric en skot hans fór framhjá markinu og stuttu síðar hafnaði skalli Kaboul eftir hornspyrnu beint í fanginu á Cech. Á 38. mínútu náði Malouda að skora framhjá Gomes í markinu eftir góða sendingu frá Zhirkov en markið var réttilega dæmt af sökum rangstöðu. Á 44.mínútu dró aftur til tíðinda þegar Pavlyuchenko sendi góða sendingu á Bale inni í teignum en hann skaut boltanum framhjá Cech í markinu og í netið með hægri fæti en þetta var hans fyrsta mark á ferlinum með hægri fætinum. Staðan orðin 2-0 fyrir Tottenham og Bale að skora sitt annað mark í jafnmörgum leikjum eftir talsvert langa markaþurrð. Lampard átti svo fínt skot á markið á lokamínútu fyrri hálfleiks en Gomes varði vel og staðan því 2-0 fyrir heimamenn í hálfleik.

 

Engin breyting var gerð í hálfleik á liðið Tottenham en Chelsea menn kusu að gera tvöfalda skiptingu og nýta þar með skiptingar sínar til fulls því þeir notuðu eina skiptingu í fyrri hálfleik þegar Mikel fór af velli vegna meiðsla. Á 50.mínútu kom fyrsta hættulega færi síðari hálfleiks en þá gerði Cech vel í að verja skot frá Defoe sem var kominn einn inn fyrir eftir góða sendingu frá Pavlyuchenko. Sá síðarnefndi skaut svo vel yfir markið úr hornspyrnunni sem fylgdi. Á næstu mínútum færðist meiri harka og hiti í leikinn og brutust meðal annars út smá slagsmál meðal leikmanna eftir að Huddlestone og Deco lentu í smá samstuði en þeir uppskáru báðir gult spjald að launum. Chelsea menn juku sóknarþunga sinn þar sem nauðsynlegt var fyrir þá að ná stigum út úr þessari viðureign í baráttunni um titilinn. Leikmenn Tottenham sýndu agaðan varnarleik og náðu að pressa einnig á Chelsea menn á hinum vallarhelmingnum. Þegar rúmlega klukkustund var liðin af leiknum gerðust tvö atvik sem gerðu Chelsea mönnum erfiðara fyrir í að jafna leikinn. Terry fékk tvö gul spjöld og fékk þar með  reisupassann hjá dómara leiksins og þurftu Chelsea menn því að spila 10 það sem eftir lifði leiks. Leikmenn Tottenham voru mun hættulegri næstu mínúturnar og áttu ágætis færi en Cech varði vel. Á 77.mínútu munaði litlu að Chelsea menn næðu að jafna leikinn en skot Ivanovic fór rétt yfir markið. Mínútu síðar gerði Harry sína fyrstu skiptingu, Defoe fór af velli og Guðjohnsen kom inná í hans stað. Bale fékk svo gott færi á 82.mínútu sem Cech varði og á hinum enda vallarins náði Dawson að koma í veg fyrir að skot Drogba hafnaði í netinu. Alex átti svo hættulegan skalla að marki Tottenham en tókst ekki að skora. Bale og Pavlyuchenko fengu svo báðir fín færi á lokamínútum venjulegs leiktíma en tókst ekki að koma boltanum í netið. Fimm mínútum var bætt við venjulegan leiktíma og áttu það eftir að verða erfiðar mínútur fyrir stuðningsmenn Tottenham sem biðu spenntir eftir lokaflauti dómarans. Enn meira spenna bættist í leikinn þegar Lampard náði að minnka muninn fyrir Chelsea menn á 92.mínútu eftir góða sendingu frá Ballack. Pavlyuchenko fékk svo eitt færi í viðbót áður en honum var skipt útaf á lokamínútunni í staðinn fyrir Crouch. Chelsea menn náðu ekki að bæta við mörkum og því voru lokatölur leiksins 2-1 Tottenham í vil og glæsilegur og verðskuldaður sigur í höfn. Tottenham situr því í 4.sæti deildarinnar eftir að City menn töpuðu sínum leik fyrr um daginn og því með pálmann í höndunum fyrir lokasprett tímabilsins.

 

Lið Spurs: Gomes, Kaboul, Dawson, Bassong, Ekotto, Bentley, Huddlestone, Modric, Bale, Pavlyuchenko (Crouch), Defoe (Guðjohnsen). Ónotaðir varamenn: Alnwick, K.Walker, Livermore, Rose, Townsend.

 

SAJ