Tap á Old Trafford

0
705

Tottenham heimsótti Manchester United í leik helgarinnar fullir sjálfstraust eftir góða sigra gegn bæði Arsenal og Chelsea. United menn voru þó staðráðnir í að stoppa sigurgöngu Tottenham enda í hörku baráttu um titilinn við Chelsea menn en vissulega þurftu Tottenham menn einnig á stigum að halda í baráttunni um 4.sæti deildarinnar. Heimamenn reyndust þó of sterkir fyrir leikmenn Tottenham líkt og fyrri ár og fóru með sigur af hólmi 3-1, þar sem Giggs(2) og Nani skoruðu mörk United en Ledley King skoraði mark Tottenham. Þrátt fyrir  tapið hélt Tottenham 4.sætinu þar sem City menn gerðu markalaust jafntefli á heimavelli erkifjenda Tottenham á sama tíma.

 

Tvær breytingar voru gerðar á liðinu frá sigurleiknum gegn Chelsea. King og Palacios komu inn í liðið í stað Bassong og Kaboul. Liðið var því þannig skipað að Gomes stóð í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Ekotto, Dawson, King og Bale. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Palacios og Modric og frammi byrjuðu þeir Defoe og Pavlyuchenko. Ánægjulegt var að sjá að Lennon var mættur á bekkinn eftir langa fjarveru og ásamt Jermaine Jenas. Á bekknum sátu því Alnwick, Bassong, Kaboul. Jenas, Lennon, Crouch og Guðjohnsen.

 

Leikurinn fór rólega af stað og bæði lið voru varkár í varnarleiknum en reyndu jafnframt að skapa sér sóknartækifæri. Nokkur hálffæri komu á fyrsta hálftíma leikins en fyrsta hættulega færið kom ekki fyrr en á 29.mínútu leiksins. Nani gaf góða sendingu á Berbatov frá vinstri kantinum en King komst í veg fyrir skot hans á síðustu stundu. Mínútu síðar átti Valencia gott skot á markið sem Gomes varði vel. Bæði lið héldu áfram að sækja að marki en gekk illa að skapa sér dauðafæri og koma boltanum í net andstæðingsins. Berbatov fékk fínt færi á 41.mínútu en skot hans fór rétt yfir markið. Lítið gerðist það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og staðan því 0-0 í hálfleik.

 

Síðari hálfleikur hófst á mun fjörugari nótum en sá fyrri og strax á 2.mínútu fékk Tottenham sitt besta færi leiksins hingað til. Boltinn barst til Pavlyuchenko eftir góða vinnu frá Bentley og Defoe en hann hitti því miður boltann illa. Á 53.mínútu gerðist svipað atvik á hinum enda vallarins en boltinn barst fyrir mark Tottenham manna í átt að Fletcher sem renndi sér fyrir boltann. En hann misreiknaði sig eitthvað og náði ekki til boltans og boltinn því aftur fyrir endamörk. Mínútu síðar varði Van der Sar vel skot frá Palacios eftir góðan sprett frá þeim síðarnefnda. Á 55.mínútu gerði Harry fyrstu skiptingu sína í leiknum, Defoe fór af velli en hann átti í smávægilegum meiðslum fyrir leikinn og Eiður Smári Guðjohnsen kom inná í hans stað. Á 57.mínútu dró svo til tíðinda þegar Ekotto braut klaufalega á Evra innan vítateigs og dómarinn var ekki í vafa og dæmdi réttilega vítaspyrnu. Giggs steig á vítapunktinn og skoraði af öryggi framhjá Gomes, sem kastaði sér þó í rétt horn. Staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Á 66.mínútu var svo komið að annarri skiptingu Redknapps í leiknum, í þetta skiptið fór Bentley af velli og inná í hans stað kom Lennon, en hann hefur verið frá keppni vegna meiðsla síðan í lok desember. Einnig breytti Redknapp um taktík, Ekotto færði sig úr hægri bakvarðarstöðunni í þá vinstri, Bale fór á vinstri kantinn, Modric inn á miðja miðjuna og Palacios i hægri bakvörðinn. Á 70.mínútu náðu leikmenn Tottenham að jafna leikinn eftir hornspyrnu sem Bale tók, en inni í teig stökk King manna hæstur og skallaði í netið framhjá Van der Sar. Staðan orðin 1-1 og leikurinn galopinn á ný. Á 76.mínútu notaði Harry síðustu skiptingu sína í leiknum, Pavlyuchenko fór af velli og Crouch kom inná í hans stað. Bæði lið sóttu til sigurs en það voru United menn sem náðu yfirhöndinni á ný á 81.mínútu. Nani tók á sprett upp vinstri kantinn og lék sig inn í vítateiginn þar sem hann skaut að marki og skoraði framhjá Gomes. Staðan orðin 2-1 heimamönnum í vil. Fimm mínútum síðar fengu Tottenham menn aftur dæmda á sig vítaspyrnu, í þetta skiptið var það Palacios sem braut á Nani innan vítateigs og dómarinn dæmdi réttilega vítaspyrnu. Giggs steig aftur á vítapunktinn og skoraði sömuleiðis úr þessari vítaspyrnu þrátt fyrir að Gomes kastaði sér aftur í rétt horn. Skotið var bara of kröftugt til þess að hann næði að verja. Staðan orðin 3-1 og lítið sem benti til annars en að sigurinn væri í höndum United manna. Crouch fékk síðasta færi Tottenham í leiknum en tókst ekki að skora framhjá  Van der Sar. Lokatölur 3-1 fyrir Manchester United.

 

Lið Spurs: Gomes, Ekotto, Dawson, King, Bale, Bentley (Lennon), Huddlestone, Palacios, Modric, Defoe (Guðjohnsen), Pavlyuchenko (Crouch). Ónotaðir varamenn: Alnwick, Bassong, Kaboul, Jenas.

 

SAJ