Bikardraumurinn úti

0
741

Bikardraumur Tottenham manna endaði rétt í þessu í vítaspyrnukeppni gegn Manchester United, eftir að staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu hafi verið markalaus. Tottenham endaði þar með í öðru sæti keppninnnar og því ljóst að vonir um að spila í evrópukeppninni á næsta ári hafa dvínað mikið. Lið Tottenham stóð sig þó vel í leiknum og gáfu Englands- og Evrópumeisturnum ekkert eftir. Heilladísirnar voru hinsvegar ekki á bandi Tottenham þegar kom að vítaspyrnukeppninni. United skoraði úr öllum sínum 4 spyrnum á meðan leikmenn Tottenham náðu aðeins að skora eitt mark. Alex Ferguson stóð við loforð sitt um að leyfa nokkrum ungum leikmönnum að spila leikinn, en þetta var þó ekkert varalið sem United tefldi fram. Harry Redknapp tefldi hinsvegar fram öllum sínum sterkustu leikmönnum.

Það er óhætt að segja að liðin hafi skipst á að hafa undirtökin í leiknum. United byrjaði fyrrihálfleik betur en Tottenham og hafði undirtökin lengst af. Manchester United fékk fleiri færi í hálfleiknum án þess þó að ná að nýta þau. Undir lok fyrri hálfleiks voru leikmenn Tottenham búnir að ná undirtökunum í leiknum, án þess þó að vera skapa sér mörg færi. Lennon náði þó nokkrum sinnum að skapa vandræði í vörn Manchester án þess að liðsmenn Tottenham næðu að klára færin.

 

Fátt markvert gerðist hjá leikmönnum Tottenham í síðari hálfleik. Besta færi Tottenham í síðari hálfleik var án efa þegar Lennon komst einn inn fyrir vörnina á 71 mín. og skaut að marki, en Ben Foster í marki United náði að koma hönd á knöttinn og blaka honum í burtu. Tvö umdeild atvik áttu sér einnig stað í síðari hálfleik. Það fyrra var á 64 mínútu þegar O‘Shea sem hafði fengið gult spjald í leiknum fór í glannalega tæklingu á Modric sem var í skyndisókn. Stuðningsmenn Tottenham vildu fá að sjá Foy dómara gefa O‘Shea annað gula spjaldið og þar með það rauða, en Foy lét það eiga sig og gaf einungis aukaspyrnu. Á 65 mínútu gerir Harry Redknapp sína fyrstu skiptingu. Roman Pavlyuchenko kemur af velli og í hans stað kemur Jamie O‘Hara. Annað umdeilt atvik átti sér svo stað á 67 mínútu þegar Ronaldo fellur í teig Tottenham. Stuðningsmenn United krefjast vítaspyrnu, en Foy dómari gefur Ronaldo gult spjald fyrir óíþróttamannslega hegðun. Á 93 mínútu lék lánið við leikmenn Tottenham. Ronaldo geysist upp hægri kantinn og leikur á Ekotto og tekur skotið sem hafnar í nærstönginni, boltinn berst út á Nani á vinstri kantinum sem er í úrvalsfæri en skýtur boltanum framhjá. Á 94 mínútu var flautaði Foy dómari til loka venjulegs leiktíma og því varð að grípa til framlengingar.

Liðin héldu áfram að skiptast á því að hafa undirtökin í framlenginunni þannig að hvorugt liðið hafði leikinn í höndum sér. Eftir að 10 mínútur af framlengingunni gerði Redknapp sína aðra skiptingu þegar hann tók Jenas af velli og setti Gareth Bale inná. aðeins 3 mínútum síðar þurfti Redknapp að gera sína síðustu skiptingu þegar Lennon meiddist. Í hans stað kom David Bentley. Á 25 mínútu dregur svo til tíðinda upp við mark United. Modric reynir skot en Vidic kemst fyrir það, og boltinn berst til Bent sem nær góðu skoti sem Ben Foster ver glæsilega með fótunum. Þegar 2 mínútur voru eftir af framlengingunni voru svo United menn nálægt því að skora þegar Evra á gott skot sem fer hárfínt yfir markið.

Það var því ljóst að grípa yrði til vítaspyrnukeppni þar sem staðan var ennþá 0-0 eftir framlengingu. United byrjaði vítaspyrnukeppnina. Ryan Giggs tekur fyrstu spyrnuna og skorar með skoti í stöngina og inn. O‘Hara stígur fyrstur Tottenham manna á punktinn en skot hans er ekki gott og Foster nær að verja. Staðan því 1-0 í vítaspyrnukeppninni. Næst stígur Tevez fram til að taka spyrnuna. Gomes fer í rétt horn en Tevez nær að skora. Þá er röðin komin að Corluka sem skorar af miklu öryggi og staðan því 2-1. Ronaldo er næstur á blaði og sendir Gomes í rangt horn og skorar örugglega. Þá er það Bentley sem tekur næstu spyrnu, en spyrnan ekki góð og fer framhjá markinu. Staðan því 3-1 og United getur tryggt sér sigurinn með því að skora úr næstu spyrnu. Anderson tekur spyrnuna og sendir Gomes í rangt horn og skorar með miklu öryggi og tryggir þar með Manchester bikarinn.

Byrjunarliðið: Gomes, Corluka, Dawson, King, Ekotto, Lennon (Bentley), Zokora, Jenas (Bale), Modric, Pavlyuchenko (O‘Hara), Bent
Ónotaðir varamenn: Alnwick, Gunter, Huddlestone, Taarabt