Það var sannkölluð markaveisla á White Hart Lane þegar Tottenham tók á móti Middlesbrough í fyrsta deildarleiknum eftir svekkjandi tap í úrslitaleik Carling bikarsins á sunnudaginn. Nokkrar breytingar voru gerðar á liðinu frá úrslitaleiknum þar sem sumum leikmönnum var ekki heimilt að taka þátt í úrslitaleiknum og komu því ferskir inn í leikinn. Það tók liðið einungis 9 mínútur að skora fyrsta markið, en það gerði Robbie Keane í sínum 200. deildarleik í treyju Tottenham. Hin mörkin skoruðu þeir Pavlyuchenko og Lennon(2) og fór Tottenham með sigur af hólmi, 4-0, og fékk því 3 dýrmæt stig í fallbaráttunni í deildinni.
Harry Redknapp gerði 3 breytingar á liðinu frá úrslitaleiknum í Carling bikarnum. Keane og Palacios gátu ekki spilað úrslitaleikinn þar sem þeir höfðu áður spilað í keppninni með sínum fyrri liðum en þeir komu inn í liðið í stað Bent og Corluka. Woodgate missti af úrslitaleiknum sökum ökklameiðsla en var búinn að ná sér fyrir þennan leik og tók sæti í liðinu í stað Ledley King. Liðið var því þannig skipað að Gomes stóð í markinu og vörnin var skipuð þeim Zokora, Dawson, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Palacios og Modric og framlínan var því skipuð þeim Keane og Pavlyuchenko. Á bekknum sátu þeir Cudicini, Chimbonda, Corluka, Bentley, Huddlestone, O´Hara og Bent.
Leikmenn Middlesbrough mættu ákveðnir til leiks fullir sjálfstraust eftir sigur gegn Liverpool síðastliðna helgi. Strax á þriðju mínútu átti Downing skot að marki eftir mistök í vörn Tottenham þegar Woodgate sendi slæma sendingu beint fyrir fætur Downing en Gomes var öruggur í markinu og varði vel. Leikurinn var hins vegar mjög jafn strax frá fyrstu mínútu og á hinum enda vallarins átti Lennon skot að marki eftir góða sendingu frá Jenas sem fór rétt framhjá marki Boro manna. En á 9. mínútu dró til tíðinda þegar Tottenham fékk hornspyrnu. Hingað til hefur ekki fylgt mikil hætta föstum leikatriðum hjá Tottenham en í þetta skiptið var breyting á því. Modric tók hornspyrnuna og gaf framarlega inn í teiginn. Þar var Dawson staðsettur og hoppaði manna hæst og skallaði boltann áfram lengra inn í teiginn. Keane var vel staðsettur og kom boltanum framhjá Jones í marki Boro. Staðan því orðin 1-0 fyrir Tottenham og var þetta fyrsta mark Keane eftir að hann gekk til liðs við félagið á ný í janúar en einnig var þetta 200. deildarleikur hans fyrir félagið. En Boro menn voru ekki á því að gefast upp og þremur mínútum síðar skoraði Tuncay eftir sendingu frá Downing. Gleðin ríkti þó ekki lengi þar sem mark hans var dæmt af sökum þess að hann var rangstæður. Mögulega hefur svekkelsið sett Boro menn eitthvað út af laginu því stuttu síðar var staðan orðin 2-0 heimamönnum í vil. Á 14. mínútu sendi Keane góða sendingu inn fyrir vörn Boro á Modric en hann lék vel á Huth og gaf fyrir markið þar sem Pavlyuchenko kom á sprettinum og skoraði örugglega framhjá Jones. Á 18. mínútu fengu Boro menn dauðafæri og hefði mark úr því hleypt þeim aftur inn í leikinn. Hoyte gaf sendingu inn í teiginn sem Woodgate skallaði frá en Tuncay náði boltanum og þrumaði í áttina að markinu en Dawson náði að kasta sér í veg fyrir skotið. Á 35. mínútu var Keane nálægt því að bæta við sínu öðru marki þegar hann fékk sendingu frá Modric vinstra megin við vítateiginn og var kominn einn á móti Jones, markverði Boro sem kom vel út úr markinu. Keane reyndi að skjóta framhjá Jones en hann varði vel. En fimm mínútum síðar þurfti Jones þó að hirða boltann úr netinu í þriðja sinn þegar Lennon skoraði glæsilegt mark eftir góða sendingu frá Keane. Staðan því orðin 3-0 fyrir heimamenn. Siðasta færi fyrri hálfleiks kom í hlut gestanna þegar O´Neil gaf góða sendingu fyrir markið á fjærstöngina þar sem Aliadiere var einn og óvaldaður og skallaði að marki hitti boltann þó illa og boltinn fór framhjá markinu. Staðan í hálfleik var því 3-0 fyrir Tottenham.
Seinni hálfleikur fór mun rólegri af stað en sá fyrri og var lítið um dauðafæri á fyrstu mínútunum. Á 53. mínútu gerði Harry fyrstu skiptinguna sína og kom Bent inná í staðinn fyrir Pavlyuchenko, en sá síðarnefndi átti við smávægileg meiðsli að stríða fyrir leikinn. Á 64. mínútu gerði Harry aðra skiptingu en þá fór Jenas af velli og Huddlestone kom inná í hans stað. Á 66. mínútu áttu Boro menn skot í stöng Tottenham en lukkudísirnar voru ekki hliðhollar þeim þetta kvöldið. Á 73.mínútu átti Arca skot að markinu sem lenti ofan á þaknetinu. En þá var komið að Tottenham og bættu þeir við enn einu markinu. Huddlestone sendi góða sendingu á Darren Bent en hann sendi svo boltann áfram á Keane. Keane renndi svo boltanum á Lennon sem skoraði að öryggi með þrumuskoti framhjá Jones í markinu. Staðan orðin 4-0 fyrir Tottenham. Harry gerði svo sína síðustu skiptingu á 73. mínútu þegar O´Hara kom inná fyrir Modric. Fékk hann góðar móttökur sem sýndi hversu vel stuðningsmenn Tottenham standa við bakið á leikmönnum sínum en O´Hara var svo óheppinn að Foster varði vítaspyrnu hans í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Á 82. mínútu átti Tuncay skot að marki sem Gomes varði af öyggi. Þegar fimm mínútur voru til leiksloka átti Keane að gera betur og bæta við fimmta markinu þegar boltinn barst til hans eftir hornspyrnu sem O´Hara tók.. Var hann í upplögðu færi, einn og óvaldaður inni í teig en skallaði boltann yfir markið. Á loka mínútum leiksins skoraði Tuncay annað mark sem einnig var dæmt af vegna rangstöðu. Leiknum lauk því með stórsigri Tottenham 4-0 og 3 dýrmæt stig í hús.
Lið Tottenham: Gomes, Zokora, Dawson, Woodgate, Ekotto, Lennon, Jenas (Huddlestone), Palacios, Modric (O´Hara), Keane, Pavlyuchenko (Bent). Ónotaðir varamenn: Cudicini, Corluka, Chimbonda, Bentley.






