Tottenham knýr fram jafntefli á lokamínútunum

0
612

Menn áttu von á tvísýnum leik í dag þar sem bæði liðin voru í svipaðri stöðu í deildinni og bæði  búin að standa sig ágætlega undanfarið. Tottenham sem vann Middlesbrough 4-0 fyrr í vikunni hefur gengið illa á útivöllum í vetur. Sunderland sem tapaði síðast fyrir Liverpool 0-2 hefur annars verið að sækja í sig veðrið að undanförnu. Bæði liðin þurftu nauðsynlega á stigunum þrem að halda til að fjarlægjast botnbaráttuna, en fyrir leikin skyldu aðeins 4 stig bæði lið frá fallsætinu. Harry Redknapp gerði 4 breytingar á liði sínu frá leiknum gegn Middlesbrough fyrr í vikunni. Dawson, Ekotto, Zokora og Pavlyuchenko viku fyrir Chimbonda, King, Corluka og Bent.

 

Um leið og dómarinn flautaði leikinn á, var ljóst að leikmenn Sunderland ætluðu sér öll stigin 3 úr þessum leik. Það var engu líkara en að það hafi komið leikmönnum Tottenham í opna skjöldu. Það voru ekki liðnar nema rúmar 2 mínútur af leiknum þegar Richardson hafði komið Sunderland í 1-0. Leikmenn Tottenham voru slegnir útaf laginu. Það tók leikmenn Tottenham nokkrar mínútur að jafna sig á þessu. En á 10. mínútu kom fyrsta færi Tottenham. Bent fær boltann inní teig og reynir skallann, en er illa staðsettur og nær ekki nógu góðum skalla til að koma Fulop markverði Sunderland í vandræði. Tveimur mínútum síðar fær Keane gott tækifæri til að jafna metin eftir sendingu frá Lennon. Eins og hjá Bent var skallinn of laus. Annars var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik, Tottenham kannski ýfið sterkari aðilinn ef eitthvað var. Besta færi Tottenham í fyrri hálfleik fékk þó King á 35. mínútu eftir aukaspyrnu sem fer af varnarmanni og berst fyrir fætur King sem nær ágætu skoti, en Fulop lokar vel og ver skotið. Staðan í lok fyrrihálfleiks því 1-0 fyrir heimamönnum.

Leikmenn Sunderland byrjuðu seinni hálfleikinn líkt og þeir byrjuðu þann fyrri. Mistök í vörn Tottenham verða til þess að Cissé kemst óáreittur upp hægri kantinn og er einn á móti Gomes í markinu, en skýtur boltanum í hliðarnetið. Leikmenn Tottenham mega þakka fyrir að hafa verið ekki komnir tveimur mörkum undir í upphafi síðari hálfleiks. Á 60. mínútu fær Darren Bent úrvalsfæri á silfurfati eftir hræðilega sendingu varnarmanns Sunderland. Darren Bent sleppur einn inn fyrir vörn Sunderland og á aðeins eftir að koma boltanum framhjá Fulop í markinu en skýtur boltanum yfir markið. Það dylst ekki á svipbrigðum Bent að hann vissi að hann hefði átt að geta betur. Mínútu síðar kemst Bent aftur í gott færi en skýtur boltanum rétt framhjá stönginni. Tveimur mínútum síðar eða á 62. mínútu sleppa leikmenn Tottenham enn og aftur með skrekkinn. Reid sendir boltann á Cissé sem er einn gegn opnu marki en klúðrar og setur boltann framhjá. Bæði liðin börðust um að hafa yfirhöndina í leiknum án þess að öðru liðinu tækist það almennilega. Harry Redknapp gerði nokkrar skiptingar sem bentu til þess að liðið ætti að sækja. Jenas, Corluka og Palacios fóru af velli fyrir Huddlestone, Pavlyuchenko og Bentley. Þannig að liðið spilaði með þrjá framherja undir lok leiksins. Þetta virtist ekki vera að bera tilætlaðan árangur þar til á 89. mínútu þegar Keane fær sendingu frá Bent upp úr skyndisókn og skorar af miklu öryggi. Þar með er staðan orðin 1-1 og leikmenn Sunderland geta ekki leynt vonbrigðum sínum. Þetta reyndust svo vera lokatölur leiksins. Leikmenn Tottenham gengu líklega ögn glaðlegri til búningsherbergja að leik loknum.

Byrjunarliðið: Gomes, Corluka (Pavlyuchenko), King, Woodgate, Chimbonda, Lennon, Palacios (Bentley), Jenas (Huddlestone), Modric, Keane (C), Bent.
Ónotaðir varamenn: Cudicini, O‘Hara, Dawson, Zokora.

EKG