Tottenham lék í gær við Bolton í 8-liða úrslitum FA CUP og var leikið á heimavelli Tottenham , White Hart Lane. Leikurinn var flautaður af eftir 41. mínútu þegar Muamba leikmaður Bolton hneig niður. Samkvæmt nýjustu fréttum er Muamba í lífshættu á spítala í London og ekki vitað hvernig þetta fer allt. Óskum honum góðs bata.
Það má nefna það að staðan var 1-1 þegar leikurinn var flautaður af , Bale hafði komið Bolton yfir með sjálfsmarki – Walker jafnaði svo leikinn fyrir Tottenham.






