Tottenham lék um síðustu helgi við lið Everton á Goodison Park í Liverpool. Lokatölur 1-0 fyrir Everton sem voru ekki sanngjörn úrslit. Var þetta þriðja tap Tottenham í röð í deildinni og það góða forskot sem liðið hafði á Arsenal og Chelsea er að engu orðið ( 1 stig í Arsenal og 4 stig í Chelsea ).
Baráttan um meistaradeildarsæti á næstu leiktíð á eftir að verða æsispennandi allt til loka tímabilsins.






