Tottenham heimsótti Birmingham á St. Andrews völlinn í leik helgarinnar. Birmingham menn hafa verið erfiðir heim að sækja og hafa einungis tapað einum af síðustu 27 heimaleikjum í öllum keppnum. Leikmenn Tottenham voru þó staðráðnir í að ná góðum úrslitum eftir góð úrslit í síðustu viku. Leikmenn Tottenham voru mun betri í fyrri hálfleik og komust yfir með marki frá Bassong eftir tæpan 20 mínútna leik. Leikmenn Tottenham fengu nokkur góð færi til að bæta við öðru marki en það tókst ekki og staðan í hálfleik 0-1. En Birmingham menn neituðu að gefast upp og pressuðu vel í síðari hálfleik og náðu að jafna leikinn á 81. mínútu með marki frá Gardner. Staðan því jöfn 1-1 og fleiri urðu mörkin ekki.
Lið Spurs: Gomes, Hutton, Gallas, Bassong, Ekotto, Lennon, Modric, Palacios, Bale, Crouch, Defoe (Pavlyuchenko 78). Ónotaðir varamenn: Cudicini, Pletikosa, Corluka, Dawson, Kranjcar, Sandro.






