Tottenham heimsótti Twente í síðasta leik riðlakeppni Meistaradeildarinnar og þrátt fyrir að liðið væri komið áfram í 16 liða úrslitin var mikilvægt að hala inn stig til að vinna riðilinn og fá hagstæðari mótherja. Fyrir umferðina voru bæði Tottenham og Inter með jafnmörg stig, Twente var búið að tryggja sér 3.sætið og Bremen varði botnsætið. Tottenham komst yfir í leiknum á 12. mínútu með klaufalegu sjálfsmarki Twente manna, en varnarmaður liðsins gaf til baka á markvörðinn sem hitti ekki boltann og boltinn rúllaði í netið. Tíu mínútum síðar fengu Twente menn vítaspyrnu þegar boltinn fór í hönd Ekotto og Landzaat skoraði af öryggi. Ekki urðu mörkin fleiri í fyrri hálfleik. Eftir einungis tveggja mínútna leik í síðari hálfleik náðu Tottenham menn forystunni með marki frá Defoe eftir góða sendingu frá Lennon. En Twente menn jöfnuðu leikinn aftur 9 mínútum síðar með marki frá Rosario. Tottenham menn náðu aftur forystunni þremur mínútum síðar með marki frá Defoe sem náði frákastinu eftir að markvörður Twente varði skot frá Palacios. En Tottenham var bara ekki ætlað að sigra þennan leik og jöfnuðu Twente menn leikinn fimm mínútum síðar og urðu mörkin ekki fleiri. Tottenham hélt þó efsta sætinu í riðlinum þar sem Inter menn biðu lægri hlut gegn Werder Bremen. Tottenham verður því meðal þeirra 16 liða sem verða í pottinum þegar dregið verður í meistaradeildinni 17.desember nk.
Lið Spurs: Gomes, Corluka, Gallas, Bassong, Ekotto, Kranjcar (Crouch 87), Palacios, Jenas ( Lennon 34), Bale, Defoe, Pavlyuchenko (Keane 73). Ónotaðir varamenn: Cudicini, Hutton, Dawson, Giovani.






