Bolton 2 – Tottenham 2

0
765

Sagan var ekki beint Tottenham mönnum í hag þegar þeir mættu á Reebok völlinn. Tottenham hafði aldrei sigrað Bolton á þessum velli, frá því hann var tekinn í gagnið árið 1997. Það var því ljóst að Harry Redknapp og lærisveinar hans áttu erfiðan leik fyrir höndum. Stuðningsmenn Tottenham gengu þó með þá von í brjósti eftir 5-0 sigur í síðustu umferð að nú myndi álögunum verða aflétt. Harry Redknapp gerði aðeins eina breytingu á liðinu sem mætti Burnley í síðasta leik liðsins. Defoe var færður á bekkinn með minniháttar meiðsli, og í hans stað kom Peter Crouch í framlínuna. Athygli vakti að hvorki Dawson né Gomes hafi verið valdir í liðið.

Áhorfendur þurftu ekki að bíða lengi eftir fyrsta marki leiksins. Heimamenn skoruðu fyrsta mark leiksins á 3. mínútu. Bolton fær innkast frá vinstri sem fer langt inn í teig þar sem Lee nær boltanum og nær góðu skoti/fyrirgjöf úr þröngu færi. Cudicini nær að slæma hendi í boltann sem dettur beint fyrir fætur Gardner fyrir framan markið sem skorar auðveldlega í opið markið. Staðan því 1-0 og leikurinn rétt ný hafin. Eftir markið var fátt um fína drætti hjá báðum liðum. Bolton réði þó lögum og lofum á vellinum. Því kom mark Tottenham á 34. mínútu sem köld vatnsgusa framan í Bolton. Palacios átti þá sendingu inn í teiginn Crouch nær að koma kollinum í boltann sem berst fyrir fætur Kranjcar sem sýnir góða skottækni og hamrar boltann í markið. Staðan því orðin 1-1 og mark Tottenham gegn gangi leiksins. Bolton héldu svo áfram að stjórna leiknum fram að leikhléi án þess að skapa sér mörg færi. Hættulegasta færið kom hinsvegar á lokamínútunni þegar Taylor slapp inn fyrir vörnina, en Cudicini náði að loka vel á hann.

Leikmenn Tottenham hafa eflaust fengið að heyra nokkur vel valin orð frá Harry Redknapp, því þeir mættu mun ákveðnari til leiks í síðari hálfleik. Fyrsta færið í síðari hálfleik kom þó ekki fyrr en eftir 9 mínútur þegar Lennon stakk sér inn í teiginn frá hægri kantinum og náði skoti að marki sem markmaður Bolton varði en boltinn hrökk til Palacios sem tók erfitt skot af stuttu færi, en boltinn fór framhjá markinu. Á 58. mínútu átti svo Crouch gott skot af stuttu færi eftir langt innkast Corluka en boltinn fór rétt yfir markið. Á 69. mínútu dró svo til tíðinda, Cohen sækir upp hægra megin og fer fram hjá Corluka. Cudicini kom út úr markinu, en Cohen náði að vippa boltanum á fjarstöngina þar sem Kevin Davies var mættur og stangaði boltann í netið. Á 73. mínútu gerðust furðulegir hlutir. Finninn í marki Bolton varði bolta frá Defoe, sem hafði komið inná sem varamaður, og boltinn datt fyrir fætur Crouch sem stóð einn 5 metra fyrir framan opið mark Bolton en skaut boltanum í jörðina og þaðan í markvörð Bolton og þaðan fór boltinn í þverslánna og afturfyrir. Þarna átti Crouch að gera miklu betur. Það var þó Crouch til happs að úr hornspyrnunni kom mark. Kranjcar tók góða hornspyrnu sem lenti beint á kollinum á landa hans Corluka sem gerði engin mistök og skallaði boltann í netið. Þar með voru báðir Króatarnir búnir að skora sín fyrstu mörk fyrir Tottenham í deildarkeppni. Bæði lið fengu sitthvort dauðafærði áður en leikurinn var flautaður af, án þess að nýta það. Lokatölur því 2-2 og Tottenham þarf því í það minnsta að bíða þar til á næstu leiktíð til að fá annað tækifæri til að sigra á Reebok vellinum í deildinni. Þess má get að Grétar Rafn Steinsson sat allan leikinn á tréverkinu hjá Bolton í þessum leik.

Liðið: Cudincini, Corluka, Huddlestone, Bassong, Ekotto, Lennon, Palacios, Jenas, Kranjcar, Keane (Defoe 68), Crouch

 

 

EKG