Það ráku margir upp stór augu þegar liðið var tilkynnt fyrir leikinn í dag. Gomes sem hafði spilað frábærlega í bikarkeppninni á miðvikudaginn var látinn verma bekkinn og Crouch sem skoraði þrennu í sama leik var einnig á tréverkinu. Það var því greinilegt að Redknapp tók mikla áhættu, þar sem þetta hefði verðið augljósa valið. Redknapp sagði eftir leikinn að þetta hafi verið mjög erfið ákvörðun. Robbie Keane sá hinsvegar til þess að Redknapp þyrfti ekki að réttlæta veru hans í stað Crouch í liðinu. Cudicini gerði það á vissan hátt líka með því að halda markinu hreinu í fyrsta skipti á leiktíðinni. Það að þetta hafi verið fyrsti leikur tímabilsins sem Spurs fær ekki á sig mark var ekki það eina merkilega í leiknum. Þetta var fyrsti úrvalsdeildar sigur liðsins í september mánuði frá því liðið vann Fullham 1-0 þann 26 sept. árið 2005. Robbie Keane skoraði fyrstu fernuna sína á ferlinum. Bale var í fyrsta skipti þáttakandi í sigurliði í úrvalsdeildarleik. Þannig að það verður minnst á þennan leik í sögubókum.
Redknapp þurfti að gera eina breytingu á liðinu sem mætti Chelsea um síðustu helgi. King var meiddur og gat því ekki spilað, í hans stað kom Kranjcar. Huddlestone var því færður í miðvörðinn meðan Kranjcar fór yfir á vinstri kantinn.
Leikurinn fór ekkert sérlega vel af stað fyrir leikmenn Tottenham. Strax á 3. mínútu þurfti Cudicini að taka á honum stóra sínum þegar Burnley átti hornspyrnu. Cudicini nánast sló boltann af kolli Nugent sem var mættur til að skalla boltann. Á 10. mínútu átti svo Jenas dauðafæri sem Jensen í markinu varði. En á 18. mínútu dró til tíðinda þegar Defoe var felldur innan vítateigs Burnley manna og dómarinn dæmdi réttilega vítaspyrnu. Það var fyrirliðinn Robbie Keane sem tók spyrnuna og sendi Jensen, sem er annálaður vítabani í rangt horn og setti boltann örugglega í netið. Staðan orðin 1-0 og Keane búinn að opna markareikning sinn. Á 21. mínútu fengu leikmenn Burnley úrvalsfæri eftir hornspyrnu þegar Fletcher skallaði boltann hárfínt fram hjá stönginni. Á 28. mínútu fékk Defoe sannkallað dauðafæri. Keane gaf góða sendingu á Jenas sem gaf viðstöðulausa hælsendingu á Defoe sem var kominn einn á móti markmanni en spyrnti boltanum framhjá markinu. Þarna átti Defoe að gera mun betur. Á 32. mínútu kom svo annað mark leiksins. Kranjcar sneiddi sér fram hjá varnarmanni Burnley og lét skotið vaða, en boltinn hrökk af varnarmanni Burnley og þaðan til Jenas sem hikaði ekki við að skjóta. Boltinn fór af varnarmanni Burnley og í netið. Jenas fær þó markið skráð á markareikning sinn. Staðan í hálfleik því 2-0 fyrir Tottenham, sem voru farnir að ná góðum tökum á leiknum undir eftir seinna markið.
Það voru leikmenn Burnley sem áttu fyrsta færi síðari hálfleiks á 50. mínútu þegar Blake fékk boltann einn og óvaldaður á fjarstöng og átti gott skot sem Cudicini varði vel. Á 54. mínútu fékk Defoe sitt annað dauðafæri í leiknum þegar hann var kominn aftur einn gegn markmanni Burnley en Jensen lokaði markinu frábærlega og varði glæsilega. Defoe þurfti að fara af leikvelli strax eftir þetta þar sem tveir fingur hans höfðu farið úr lið. Inná í hans stað kom Crouch. Á 70. mínútu fá leikmenn Burnley sitt besta færi í leiknum þegar Cudicini gerði klaufaleg mistök. Burnley fá aukaspyrnu fyrir utan teig. Þeir ákveða að skjóta að marki og Cudicini ver og virðist halda boltanum en missir hann klaufalega frá sér og Blake nær skoti að marki úr þröngu færi og boltinn smellur í stönginni. Þarna sluppu leikmenn Spurs með skrekkinn. En þetta virtist kveikja í leikmönnum Tottenham. Á 74. mínútu kemur þriðja mark leiksins. Jenas á frábæra sendingu á Lennon sem keyrir í upp hægri vænginn og gefur frábæra fyrirgjöf á Keane sem er mættur og hamrar boltann í netið. Staðan nú orðin 3-0. Það tók svo Keane ekki nema tæpar 4 mínútur að fullkomna þrennuna. Á 78. mínútu fær Keane boltann fyrir framan markið eftir frábæra langsendingu Huddlestone, og þarf aðeins að leggja boltann fram hjá Jensen í markinu sem hann og gerir. Staðan nú orðin 4-0 Tottenham í vil. Á 85. mínútu fer Lennon útaf og í hans stað kemur Bale. Það var nokkuð ljóst að leikmenn Spurs vita af óláni Bale í úrvalsdeildarleikjunum, þar sem hann hefur enn ekki verið þáttakandi í sigurliði. Lennon glotti við tönn þegar honum var skipt útaf í stað Bale og því nokkuð víst að með 4-0 forustu þegar 5 mínútur eru eftir af leiknum væri Bale að losna úr álögunum. Á 86. mínútu dregur svo heldur betur til tíðinda. Cudicini tekur útspark, Crouch flikkar boltanum með kollinum fyrir Keane sem er kominn einn gegn markmanni og skýtur undir Jensen í markinu og boltinn syngur í netinu. Staðan orðin 5-0 og fyrirliðinn þar með búinn að skora fernu í leiknum, og það sýna fyrstu fernu á ferlinum. Það voru svo leikmenn Spurs sem áttu færin það sem eftir lifði leiks og yfirburðir Tottenham algjörir ef á heildina er litið.
Liðið: Cudicini,Corluka, Huddlestone , Bassong (Dawson 89), Ekotto, Lennon (Bale 85), Palacios, Jenas, Kranjcar, Defoe (Crouch 57)
EKG






