Tottenham spilaði sinn fyrsta leik á undirbúningstímabilinu fyrir komandi tímabil í ensku deildinni þegar þeir heimsóttu Bournemouth á laugardaginn. Ekki var um fullskipað lið Tottenham að ræða þar sem þeir leikmenn sem tóku þátt í Heimsmeistarakeppninni eru enn í sumarfrí. Leiknum lauk með sigri Tottenham 0-4 og mörkin skoruðu þeir Obika, Rose og Pavlyuchenko(2). Því miður var þetta ekki áfallalaus leikur fyrir Tottenham því David Bentley meiddist á ökkla og hafa rannsóknir staðfest að hann verði frá í nokkrar vikur.
Nýjustu fréttirnar
Hópferð Tottenhamklúbbsins – Nóvember 2026 (UPPSELT)
Daginn Þá er komið að fyrstu hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi tímabilið 2026-2027Farið verður á leik Tottenham - Ipswich sem verður á Tottenham Hotspur Stadium,...







