Leikjaplanið fyrir næsta tímabil hefur verið gefið út og byrjar Tottenham tímabilið á White Hart Lane með því að taka á móti Manchester City. Fyrsti leikurinn við topp fjögur lið verður 30. október þegar liðið heimsækir Manchester United á Old Trafford. Jólaleikirnir eru gegn Aston Villa, Newcastle og Fulham. Nágrannaslagirnir tveir við Arsenal fara fram 20. nóvember og 26.febrúar (WHL). Síðasti leikur tímabilsins er sömuleiðis á White Hart Lane en þá kemur Birmingham í heimsókn, þann 22. maí.






