Defoe frá keppni í langan tíma

0
615

Jermain Defoe þarf að gangast undir aðgerð á morgun eftir að frekari rannsóknir leiddu í ljós að hann er brotinn á fimmta ristarbeini. Defoe varð fyrir meiðslum á æfingu liðsins og eftir ítarlegar rannsóknir varð niðurstaðan sú að aðgerð er nauðsynleg. Mun hann því vera frá keppni í að minnsta kosti 10 vikur en þetta geta verið erfið meiðsli og ómögulegt að segja til um hversu langan tíma hann verður frá.