Eins og búast mátti við var stemmingin rafmögnuð á WHL þegar Tottenham tóku á móti grönnum sínum í Arsenal. Tottenham hafði ekki sigrað Arsenal í deildinni í 10 ár þegar kom að leiknum í dag, en áhorfendur bjuggust við mörkum þar sem fyrri leikur liðanna endaði með 4-4 jafntefli á heimavelli Arsenal. Harry Redknapp gerði tvær breytingar á liðinu sem mætti Bolton í síðustu umferð. David Bentley tók út leikbann og Zokora fór á bekkinn. Jermain Jenas og Robbie Keane komu inn í staðinn. Robbie Keane var fyrirliði liðsins í leiknum og var honum vel tekið af stuðningsmönnum Tottenham
Arsenal sem hafði keypt Arshavin fyrir nokkrum dögum ákvað að hafa hann á bekknum. Annars stilltu þeir upp sínu sterkasta liði líkt og Tottenham. Það vakti athygli að Cudicini hélt stöðu sinni í markinu þrátt fyrir að Gomes hafi verið orðinn leikfær. Leikurinn fór hinsvegar fjörlega af stað, og lét fyrirliðinn Keane strax til sín taka á 3. mínútu þegar Gallas sparkaði í hann inni í vítateig Arsenalmanna. Mike Dean, sem hafði góð tök á leiknum, hafði hinsvegar engan áhuga á að uppfylla ósk Keane um vítaspyrnu. Á 6. mínútu áttu Arsenal menn svo hættulegt skot sem fór rétt framhjá marki Tottenham. Aðeins nokkrum sekúndum síðar komst Lennon í upplagt marktækifæri þegar hann fékk boltann frá Keane og fór framhjá varnarmanni Arsenal og tók skot af 8 metra færi sem Almunia í marki Arsenal varði meistaralega. Á 13. mínútu skoruðu Arsenal mark, sem var dæmt ógilt vegna brots Eboue á Woodgate. Á 15. mínútu sendi Ekotto boltann frá vinstri vængnum inn í átt að teignum þar sem Pavlyuchenko tók viðstöðulaust skot að marki, en boltinn fór framhjá. Leikurinn fór því vel af stað og bæði lið ætluðu sér að skora fyrsta markið. Leikurinn var í járnum og liðin börðust um að hafa undirtökin. Á 34. mínútu meiddist Adebayor markahrellirinn mikli sem hefur skorað ófá mörkin gegn Tottenham, og varð að fara af leikvelli. Nokkrum andartökum síðar urðu Arsenal fyrir öðru áfalli þegar Eboue fékk að líta sitt annað gula spjald í leiknum og því það rauða. Síðasta færi fyrrihálfleiks átti Wilson Palacios þegar hann átti þrumuskot af löngu færi sem Almunia náði að slá yfir markið. Staðan því 0-0 í hálfleik og Arsenal einum manni færri.
Tottenham byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti og virtust staðráðnir í að nýta sér liðsmuninn. Fyrstu 10 mínúturnar í síðari hálfleik átti Tottenham nokkur góð skot að marki Arsenal manna. Besta færi leiksins til þessa átti Robbie Keane þegar Lennon gaf góða fyrirgjöf inn í teig þar sem Robbie Keane skallaði boltann rétt yfir markið. Á 64. mínútu gerði Redknapp fyrstu skiptinguna sína þegar hann tók Pavlyuchenko af velli og í hans stað kom Darren Bent sem hafði skorað 2 mörk í síðasta leik. Leikmenn Arsenal komu sér nokkrum sinnum í góð færi einnig og á 70. mínútu átti Alex Song hættulegt skot að marki Tottenham, en boltinn fór rétt framhjá. Á 74. mínútu kom önnur skipting Tottenham manna þegar Chimbonda kom inná í stað Corluka. Á 86. mínútu gerði Redknapp síðan þriðju og síðustu skiptinguna sína þegar hann tók Lennon af velli og skipti Taarabt inná í staðinn. Tottenham voru atkvæðameiri á síðustu mínútunum og þegar komið var framyfir 2 mínútur í uppbótartíma fengu leikmenn Tottenham gullið tækifæri til að taka öll þrjú stigin úr leiknum. Tottenham vinnur boltann á eigin vallarhelmingi og Adel Taarabt geysist fram völlinn, og með honum fylgja tveir Tottenham menn. Taarabt gefur boltann til hægri þar sem Luka Modric tekur við boltanum einn á móti markmanni en Almunia í marki Arsenal ver skotið stórkostlega. Lokatölur því 0-0, í bráðfjörugum leik.
Byrjunarliðið:
Cudicini, Corluka (Chimbonda), Dawson, Woodgate, Ekotto, Lennon (Taarabt), Palacios, Jenas, Modric, Keane, Pavlyuchenko (Bent) .
Ónotaðir varamenn: Gomes, Bale, Huddlestone, Zokora
.