Dos Santos staðfestur

0
609

Nú er opinberlega búið að fullganga frá samningi milli Tottenham og Barcelona á kaupum þess fyrrnefnda á Giovani Dos Santos. Liðin höfðu komist að samkomulagi um kaupverð og önnur smáatriði en eftir var að semja við leikmanninn og framkvæma læknisskoðun. Nú er því hins vegar lokið og Dos Santos því leikmaður Tottenham frá og með 1.júlí þegar leikmannaglugginn opnar formlega. Kaupverðið er talið vera í kringum 5 milljónir punda en getur hækkað upp í hátt í 9 milljónir eftir frammistöðu og leikjafjölda. Einnig hefur verið gefið upp að innifalið í samningnum er klásúla sem tryggir Barcelona 20% hluta af söluverðinu ef Dos Santos er seldur innan tveggja ára og 10% eftir það.

Hinn 19 ára gamli Dos Santos sagði að nú væri draumur hans að rætast að ganga til liðs við stóran klúbb eins og Tottenham er. Hann væri kominn til Tottenham til að þróa og bæta leik sinn og gefa allt sitt fyrir félagið. Hann væri vissulega ungur en ætti vonandi eftir að fá tækifæri til að láta ljós sitt skína. Hrósaði hann því hversu vel honum var tekið og sagði að félagið væri metnaðarfullt og framtíðin björt. Stuðningsmennirnir væru ástríðufullir og það heillaði hann og hlakkar hann mjög til að spila á Englandi.

     Ramos var ánægður með nýju viðbótina og hlakkar til að vinna með honum í framtíðinni enda hefur hann fylgst með Dos Santos í talsverðan tíma. Á blaðamannafundi sagði Ramos að ef Giovani þroskist og taki þeim framförum sem þeir búast við þá verði hann frábær leikmaður. Hann er enn ungur en hefur mikla hæfileka, er mjög teknískur og getur spilað í nokkrum stöðum á vellinum, sem er ávallt kostur.

     Comolli bætti við að Giovani hefði yfir að búa bæði líkamlegum styrk sem og hraða og góðri tækni. Þetta væri leikmaður sem gæti bæði skorað mörk og búið til færi fyrir aðra leikmenn. Þrátt fyrir ungan aldur hefði hann þónokkra reynslu og væri frábær viðbót við leikmannahópinn. Og sú staðreynd að þjálfarateymið er spænskumælandi ásamt því að fyrir hjá félaginu er t.a.m. Gilberto(sem er spænskumælandi) ætti það vonandi eftir að hjálpa Giovani að aðlagst fljótt og vonandi verður framtíð hans björt á Englandi.