Enn einn sigur á White Hart Lane

0
673

Tottenham tók á móti botnliðinu West Bromwich Albion á White Hart Lane á laugardaginn. Bæði lið voru hungruð í 3 stig enda í baráttu á tveimur ólíkum vígstöðum, Tottenham er í baráttu um evrópusæti á meðan WBA berst fyrir tilveru sinni í deildinni. Leiknum lauk þó með sigri heimamanna, 1-0 þar sem Jermaine Jenas skoraði eina mark leiksins. Var þetta sjötti leikurinn í röð sem leikmenn Tottenham halda hreinu á White Hart Lane og er Tottenham enn það lið sem fæst mörk hefur fengið á sig á heimavelli í vetur, 9 talsins. Einnig komst liðið einu skrefi nær því að bæta 90 ára gamalt met varðandi fæst mörk fengin á sig en aðeins einn leikur er eftir á White Hart Lane þetta tímabilið.

 

Harry gerði einungis eina breytingu á liðinu frá leiknum gegn Manchester United um síðustu helgi, Pavlyuchenko kom inn fyrir Bent sem meiddist í leiknum á Old Trafford og ólíklegt að hann komi meira við sögu á þessu tímabili. Liðið var því þannig skipað: Gomes stóð í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Woodgate, King og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Palacios og Modric. Framlínan var skipuð þeim Pavlyuchenko og Keane. Á bekknum sátu þeir Cudicini, Hutton, Bale, Zokora, Huddlestone, Bentley og Defoe.

 

Leikurinn fór rólega af stað og ekki var mikið um dauðafæri á upphafsmínútunum. Leikmenn WBA áttu þó ágætis möguleika á 3.mínútu leiksins þegar Fortune lék á King og gaf svo boltann á Valero en hann hitti boltann illa og náði ekki að skapa hættu við mark Tottenham. Á 22. mínútu átti Gomes góða markvörslu eftir skalla frá Olsson úr hornspyrnu. Þremur mínútum síðar fóru leikmenn Tottenham aðeins að lifna við og átti Lennon gott skot að marki en boltinn fór rétt framhjá. Pavlyuchenko og Keane fengu svo báðir færi sem þeir hefðu átt að nýta betur en það misfórst hjá þeim. Lennon fékk svo aftur gott færi þegar líða tók á fyrri hálfleikinn en Carson varði vel í marki WBA. Undir lok fyrri hálfleiks náðu svo leikmenn Tottenham loksins að skora þegar Jenas skaut löngu skoti að marki eftir fyrirgjöf frá Corluka og Carson náði ekki til boltans þrátt fyrir góða tilraun til þess. Staðan var því orðin 1-0 og voru það hálfleikstölur leiksins.

 

Markið sem Tottenham skoraði virtist ekki hafa of mikil áhrif á leikmenn WBA enda komu þeir baráttuglaðir til leiks í seinni hálfleik staðráðnir í að gefast ekki upp fyrr en dómarinn flautaði leikinn af. Strax eftir 5 mínútna leik komst Fortune í ágæta stöðu en skot hans fór beint á Gomes. Nokkrum mínútum síðar var Fortune aftur á ferðinni og í þetta sinn fór skot hans framhjá Gomes í markinu en til allrar hamingju fyrir leikmenn Tottenham hafnaði boltinn í stönginni og skaust þaðan aftur út í teiginn. Á hinum enda vallarins var það einna helst Lennon sem hrelldi varnarmenn WBA og átti hann ágætis færi sem Carson varði og einnig fína fyrirgjöf á Keane sem var í góðri stöðu en hann hitti ekki boltann. Harry gerði breytingu á 65. mínútu, Pavlyuchenko fór af velli og Defoe kom inná í hans stað við mikinn fögnuð áhorfenda, en hann tók ekki þátt í leiknum gegn Manchester United sökum andláts bróður hans. Á 70.mínútu átti Martis skalla að marki fyrir WBA en boltinn fór rétt yfir stöngina. Stuttu síðar munaði litlu að WBA mönnum tækist að skora upp úr hornspyrnu. Martins skallaði að markinu við nærstöngina, en þar stóð enginn annar en Defoe og náði hann að koma í veg fyrir að boltinn færi inn og svo sló Gomes boltann frá markinu. Gomes var svo enn á ferð þegar líða tók á leikinn og varði frábærlega þegar Koren skaut að marki. Á hinum enda vallarins fengu Lennon og Jenas færi til að skora en tókst ekki að koma boltanum framhjá Carson. Defoe tókst hins vegar að koma boltanum í netið en markið var dæmt af sökum rangstæðu en í endursýningu má sjá að hann var rættstæður. Markið þó dæmt af en niðurstaða leiksins var þó engu að síður sigur heimamanna, 1-0 og er liðið enn í hörku baráttu um 7.sætið þar sem West Ham situr eins og er með 48 stig en fast á hæla þeirra fylgja Fulham, Manchester City og Tottenham öll með 47 stig.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Ekotto, Lennon, Jenas, Palacios, Modric, Pavlyuchenko (Defoe), Keane. Ónotaðir varamenn: Cudicini, Hutton, Bale, Huddlestone, Zokora, Bentley.